Lítil typpi: 7 atriði sem gott er fyrir strákamömmur að vita

Ég á enga bræður en ólst upp með þremur systrum. Ég gæti því alveg sagt ykkur sitthvað um stelpur á mismunandi aldri en verð að viðurkenna að minna vissi ég um stráka. Þar til ég síðan eignaðist þá sjálf. Nú á ég meira að segja tvo og síðan eina litla dömu í miðjunni.

Og eins og gengur og gerist með okkur foreldrana, þá er ýmislegt sem við lærum svona bara á leiðinni. Eftir að okkar eigin börn fæðast. En það er eitt sem enginn ræddi um við mig um en það eru typpin á litlu strákunum okkar. Já, það getur vel verið að þau séu bara á stærð við ,,tic tac\" nammi, en ég hef nú samt komist að því að það eru nokkur atriði sem er gott fyrir okkur strákamömmurnar að vita. 

1. Þeir geta fengið standpínu mjög snemma. Ekki fá sjokk, því þetta er fullkomlega eðlilegt. Í mínu tilfelli fékk litli guttinn minn einhvers konar standpínu 2 vikna gamall, sem fyrst og fremst var bara eitthvað sem auðveldaði honum að pissa akkúrat við bleiuskiptin.

2. Þeir geta meitt sig eða verið aumir í typpinu. Áður en börnin okkar fara að tala og geta skýrt út fyrir okkur hvað það er sem meiðir eða þeim verkjar í, eru það aðallega svipbrigði, grátur og handabendingar sem við lesum í. Ef þér finnst eins og sá litli sé að benda á magan, athugaðu þá líka typpið. Það þarf ekki annað en að hár hafi vafist um litla vininn, jafnvel svo ósýnilegt að þú þarft eiginlega stækkunargler til að sjá það. Aðalmálið er að vera meðvitaður um að auðvitað geta drengir meitt sig eða fundið til í typpinu, eins og annars staðar.

3. Typpið gæti horfið einn daginn! Þetta á væntanlega aðeins við ef þið eigið einn lítinn og vel þéttan eins og ég. Einn morguninn var ég að skipta á honum og fékk hálfgert hjartaáfall. Typpið var horfið!

Eflaust hlæja einhverjir af þessari vitleysu í mér en ég er að segja ykkur satt: Typpið var horfið og ég hringdi því í lækninn okkar. Hann sagði mér rólega að hafa engar áhyggjur. Þetta væri hvorki í fyrsta né síðasta sinn sem hann hefði fengið svona símtal, en í rauninni væri typpið bara búið að ,,fela sig” í smá stund. Með því að nota tvo fingur og þrýsta fitunni sitthvoru megin við typpið aðeins niður, kom litli vinurinn aftur í ljós.

4. Hvers vegna er typpið hans pabba stærra en mitt? Feðgar að fara saman í sturtu eða bað er væntanlega eitthvað sem flestir foreldrar þekkja. Á einhverjum tímapunkti fara strákarnir að spá í typpinu á pabba og hvers vegna það er svona miklu stærra en þeirra.

Mjög líklega mun pabbinn fyrst og fremst fyllast stolti af sinni eigin karlmennsku og ekkert ólíklegt að hann segi mömmunni frá samtalinu. Það ráð sem ég gef þá helst ykkur mömmunum er að vera til taks ef þið sjáið að litli prinsinn er eitthvað aumur eða viðkvæmur yfir typpinu sínu og finnst það lítið. Þeir gætu jafnvel grátið í hljóði yfir stærðarmuninum.

5. Typpsamræður. Verið viðbúnar typpasamræðum. Þegar guttarnir ykkar verða aðeins eldri og byrjaðir að tala, þá er ekkert undan þessum samræðum komist. Þeir munu segja ykkur frá því þegar typpið þeirra stendur allt í einu beinstíft út í loftið, þeir munu segja ykkur frá því ef það er eins og límt við lærið, þeir munu segja ykkur frá því ef þeir eru rauðir eða aumir, þeir munu líka tosa það til og teygja fyrir framan ykkur og hvað annað sem þeim mun finnast spennandi að  skoða, ræða eða velta fyrir sér.

6. Þeir munu mæla það. Strákar mæla ýmsa hluti. Og já: á einhverjum tímapunkti munu þeir mæla á sér typpastærðina.

7. Hvers vegna er typpið á öðrum mönnum öðruvísi? Vertu viðbúin því að hann spyrji út í typpin á öðrum mönnum eða drengjum. Ef það er eitthvað sem honum finnst vera öðruvísi, þá spyr hann. Og vittu til: hann gerir ráð fyrir að mamma viti alltaf svarið!

Höfundur:  Katie Smith birti þennan pistil á vefsíðunni Scarymommy.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!