Leyndarmálinu ljóstrað upp: 5 auðveld atriði til að halda heimilinu hreinu

Á sama tíma og sumir þurfa að eyða heilu dögunum eða helgunum í þrif, uppsafnaðan þvott, tiltekt og annan frágang, virðast aðrir hafa minna fyrir heimilinu, sem samt er alltaf ,,spikk og span!” Hvernig fer þetta fólk að þessu? Elskar það kannski að þrífa? Nei, mjög líklega ekki en í grein á Huffingtonpost, eru tekin saman þau 5 atriði sem einkenna fólk sem á mjög þrifaleg heimili en þurfa þó ekki að eyða heilu klukkutímunum í að þrífa.

Við skulum því renna yfir þessi 5 atriði sem sögð eru skipta mestu máli.

1. Gerðu greinamun á drasli og skít.

Það er mikill munur á því hvort blöð, föt, óumbúin rúm, dót á gólfi eða annað álíka er það sem fyrst og fremst þarf að ganga frá, eða hvort gólfin eru orðin skítug, eldhúsið á hvolfi eða klósettið komið langt yfir þrifþörfina. Það fyrrnefnda er nefnilega auðveldara og þrifalegra. Haltu heimilinu hreinu með því að þrífa alltaf eitthvað á hverjum degi og viti menn: Hjá þér er í rauninni alltaf allt hreint og fínt, þótt stundum þurfi að ganga frá einhverju dóti. Dæmi: Varstu að bursta tennurnar? Skolaðu og þrífðu vaskinn í framhaldinu.

2. Taktu ÁKVÖRÐUN um hvernig heimilið á að vera.

VILJI er í rauninni lykilatriðið, því fólk sem á heimili sem virðast alltaf hrein og fín, er fólk sem hefur í rauninni tekið þá ákvörðun að þau VILJA halda því hreinu og fínu. Þetta er því ekki kvöð, heldur ákvörðun um það hvernig heimilið á að vera. Fjölskyldumeðlimir eru allir þáttakendur í þessu og meðvitaðir um að auðvitað líður öllum betur, þegar það er ekki drasl og uppsöfnuð þrif allt í kring.

3. Nýttu hverja ferð!

Þeir sem þurfa ekki að eyða heilu dögunum í þrif og tiltekt, eru þeir sem í rauninni nýta allar ferðir fyrir eitthvað. Það að taka af stofuborðinu og bera inn í eldhús, um leið og þú stendur upp frá sjónvarpinu, er eitt lítið dæmi. Það að búa um rúmið, um leið og þú skellir þér í fötin, er annað dæmi. Það að brjóta saman þvottinn strax eftir að hann er tekinn úr þurrkaranum, getur verið þriðja dæmið.  Ekki safna þessu upp!

4. Hverju má henda strax?

Það eru blöð og alls kyns drasl sem safnast upp í kringum okkur. Oft eitthvað sem fylgir börnunum, en er í rauninni eitthvað sem má henda strax. Hentu því þá STRAX! Þeir sem halda heimilunum sínum hreinum og fínum, sanka nefnilega að sér minna drasli en aðrir.

5. Vertu með draslaskúffu.

Það er auðvitað enginn fullkominn og því er draslaskúffa nauðsynleg. Hitt og þetta smádót er eitthvað sem þarf ekki að henda og við notum jafnvel seinna. Eða bara pennar, kvittanir eða eitthvað sem þú vilt geyma. Haltu þessu smádóti til haga í einni skúffu sem þú hreinlega kallar ,,draslaskúffuna.”

ps. Og mundu eftir að renna yfir þennan lista með öðrum á heimilinu. Það er engin ástæða til annars en að til dæmis börnin venji sig á þessi atriði strax.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífið, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!