Lést í brúðkaupsferðinni

Um síðustu helgi, voru David Bulmer-Rizzi og Marco Bulmer-Rizzi, á ferð um suðurhluta Ástralíu. Þeir voru í brúðkaupsferð og lífið hreinlega lék við þá. En fyrir slysni, datt David niður stiga, með þeim afleiðingum að hann lést.

David og Marco voru frá Bretlandi, en þar hefur hjónaband samkynhneigðra verið leyft í mörg ár. Annað er uppi á teningnum í Ástralíu, sem leyfir ekki hjónaband samkynhneigðra. Til viðbótar við sorgina, þarf Marco því að standa í stappi við áströlsk yfirvöld, sem neita að skrá á dánarvottorð Davids, að hann hafi verið giftur.

,,Er ég enginn?” spyr Marco, sem hefur vakið athygli fjölmiðla á málinu og auk þess haft samband við bresk yfirvöld. Hann er ósáttur við að flytja þurfi líkið heim, með samþykki föður Davids.

,,Ég fór að sofa og David ætlaði að koma stuttu á eftir mér. Hann var bara að lesa. Ég vaknaði síðan um 45 mínútum síðar við eitthvað hljóð. Ég kveikti ljósin og sá hann þá liggjandi í blóði sínu fyrir neðan stigan.”

Sjúkraliðar reyndu hvað þeir gátu að halda lífi í David, en allt kom fyrir ekki og David lést stuttu eftir en hann kom á sjúkrahúsið. Þá tók við frágangur ýmissa praktískra upplýsinga og skjala. David var þá skráður ,,ógiftur” og Marco því ekki einu sinni listaður sem nafn nákomins. Haft var samband við föður David, sem benti á að það væri Marco, tengdasonur hans, sem ætti að gefa þeim upplýsingar og leyfi fyrir því sem þyrfti. En samkvæmt áströlskum lögum, þá er það hreinlega ekki hægt.

Meðal þess sem Marco vildi ganga frá, voru líffæragjafir, því David hafði látið vita af þeim vilja sínum, að þau yrðu gefin myndi hann falla frá.

 ,,Ég held mér gæti ekki liðið verr” segir Marco um þau viðbrögð sem honum hefur mætt síðustu daga. Málið hefur vakið athygli og meðal annars hefur vefsíðan Buzzfeed reynt að leita svara hjá áströlskum yfirvöldum. Nú er nefnilega spurt:

Getur samkynhneigt fólk orðið réttindalaust, ferðist það á milli landa?

Hér má sjá nokkrar myndir úr brúðkaupi og ferð Marco og David.

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!