Lést af heilahimnubólgu eftir 11 daga veikindi (ath: við vörum við myndbirtingu í grein)

Athugið: Við vörum við myndbirtingunni í þessari grein.

Síðastliðinn sunnudag lést lítið stúlkubarn í Bretlandi, sem hét Faye Burdett. Foreldrar Faye biðja fólk nú um að deila mynd af henni, sem, sem sýnir hana fyrir og eftir veikindi. Faye lést úr heilahimnubólgu B. Á Íslandi er bólusett gegn heilahimnubólgu C en ekki heilahimnubólgu B.

Málið hefur vakið mikla athygli og reiði í Bretlandi. Það er ekkert síst vegna þess að í september á síðasta ári, tóku Bretar upp bólusetningu gegn heilahimnubólgu B og var breytingunni fagnað mjög þar ytra. Nýju reglurnar gera hins vegar eingöngu ráð fyrir bólusetningu barna sem eru þriggja ára eða yngri.

Foreldrar Faye skora nú á bresk yfirvöld að hækka þau aldursviðmið í 11 ára og þegar hafa hundruðir þúsunda skrifað undir undirskriftarlista, sem farinn er af stað þar.

Faye lést aðeins 11 dögum eftir að veikindin voru greind. Foreldrar hennar fóru með hana á sjúkrahús vegna útbrota á enni.

 \"\"

Mbl.is sagði frá breytingum breskra yfirvalda á bólusetningu gegn heilahimnubólgu B í grein í fyrra. Þar segir Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, að hér á landi hafi verið bólusett gegn heilahimnubólgu C lengi, með góðum árangri. Lyf gegn heilahimnubólgu B hafi löngum verið erfiðari viðfangs, en skoðað yrði hér, hvort Ísland myndi fylgja í fótspor Breta. Áður en ákvörðun er tekin um nýtt bóluefni, verður Lyfjastofnun hins vegar að samþykkja lyfin. Síðan þarf að koma til fjárveiting. Lesa má frétt mbl.is með því að smella HÉR.

Um einkenni heilahimnubólgu má lesa á Vísindavefnum, sjá HÉR.

Frétt Telegraph um bólusetningar í Bretlandi má lesa um HÉR en sögu Faye og ákall foreldra hennar, af vefsíðunni Science.MIC, sjá HÉR.

---

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!