Leikarinn patrick stewart: 75 ára og enn með ,,six pack”

Um síðustu helgi, birti Patrick Stewart mynd af sér á bleikum stuttbuxum á ströndinni, með drykk í hendi, sólgleraugu og .... ,,six pack!” Myndina birti hann á Instagram og auðvitað fékk hún þúsundir ,,líkar við” frá aðdáendum. En margir fóru líka að velta því fyrir sér, hvernig í ósköpunum þessum 75 ára gamla leikara, tekst að vera í svona flottu formi, hátt í að verða áttræður!

Stjörnufréttamenn ET tóku hann tali og spurði um magavöðvana. Patrick hló að eftirtektinni og sagðist ekkert hafa verið að hugsa um neina kroppasýningu, þegar hann smellti myndinni inn á Facebook. Hann sagðist hins vegar alveg geta sagt hvert leyndarmálið væri að magavöðvunum. Það eina sem fólk þyrfti að gera, væru armbeygjur daglega:

,,Það vita allir að það er góð æfing að planka, en til þess að líkaminn haldi áfram að fá áskoranir, mæli ég með því að taka alltaf einhverjar armbeygjur með. Það reynir meira á líkaman og þú nærð meiru út úr plankinu þannig. Þú byggir upp vöðva og brennir fleiri hitaeiningum.”

Og þar höfum við það!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!