Leikararnir í vinum koma saman í febrúar – staðfest!

Það er staðfest í þetta sinn: VINIR eru að koma saman aftur! Þó ekki í heila sjónvarpsseríu, heldur sérstakan þátt sem NBC tilkynnti í dag að yrði sýndur í febrúar þar ytra.

Tilefnið þáttarins er að hann verður þá 1000 þáttur leikstjórans James Burrows í sjónvarpi. Burrow var leikstjóri VINA í 15 ár, en eins og allir muna, þá sló sú sería svo rækilega í gegn að hún er orðin klassík í dag.

Þátturinn verður tveggja klukkustunda langur en það eru þó ekki aðeins VINIRNIR sem eru að koma saman, heldur fleiri leikarar úr öðrum þekktum sjónvarpsþáttum. Má þar nefna Cheers, Frasier, Will & Grace, The Big Bang Theory og Mike and Molly, en allt eru þetta afurðir Burrow.

Nú er bara spurning um hver tryggir sér réttinn hér á landi?

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Ég bara spyr kl.21.30 í kvöld. Þar segir móðir frá þeim vítahring dóttur sinnar, að festast í vanskilaskuldum smálána. Fór svo að smálánafyrirtækin tæmdu bankareikninginn síðastliðið haust, þegar unga konan ætlaði að greiða húsaleiguna sína. Þátturinn er endursýndur kl.23.30 og um helgina.

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!