Lóa og lífið: ,,bergson og blöndal\"

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður FKA með meiru, hefur í nægu að snúast þessa dagana, því í kvöld hefur dagskrá sína þátturinn Lóa og lífið á Hringbraut. Þetta er léttur og skemmtilegur þáttur segir Lóa við Zetuna, sem vildi forvitnast aðeins um, út á hvað þættirnir ganga.

\"\" ,,Til mín munu koma til vinir, hjón og pör af öllu tagi til að tala um vináttuna / samvinnu í allri sinni mynd” segir Lóa en gestir í fyrsta þætti, eru Margrét Blöndal og Felix Bergsson. Þau segja meðal annars frá því hvernig ,,Bergson og Blöndal” urðu til, segir Lóa og hlær um leið. Hún vill þó ekki ljóstra upp fleiru en segir að nú sé bara um að gera að fylgjast með kl.20.00 á Hringbraut í kvöld.

Lóa er kímin á svipinn þegar Zetan reynir hvað hún getur að fá einhverjar frekari upplýsingar um hvað í vændum er. Mikið var hlegið í tökum á fyrsta þættinum og svo hátt stundum, að annað starfsfólk Hringbrautar þurfti hreinlega að líta upp frá sínum störfum og velta því fyrir sér hvað væri svona skemmtilegt að gerast inni í stúdeói stöðvarinnar. Lóa segir að meðal þess sem fólk fær að heyra um í þætti kvöldsins, sé um konurnar í lífi Felix Bergssonar. Lóa bætir síðan við: ,,Og hver er ekki forvitin að fá að heyra um þær!”

Lóa segir að þáttastjórn í sjónvarp sé annars mjög skemmtilegt viðfangsefni að takast á við. Síðastliðið vor var hún með þætti á Hringbraut, sem hétu Sjónarhorn, en þar voru rædd ýmiss samfélagsmál. Í þetta sinn er Lóa á léttari nótum og hefur Zetan heimildir fyrir því að samstarfsfélagar hennar á Hringbraut kalli hana ,,Opruh Winfrey” þegar Lóa mætir á staðinn. 

,,Þetta er mjög gaman og ég fæ til mín afar skemmtilega og áhugaverða viðmælendur. Nú erum við á fullu að undirbúa þættina fyrir vorið og margir skemmtilegir viðmælendur á döfinni eins og fólk út skemmtana bransanum, íþróttalífinu, atvinnulífinu , fjölmiðlum og listalífinu.”

Með þessum orðum kveður Lóa í bili en Zetan bíður spennt eftir Lóa og lífið kl.20 á þriðjudagskvöldum. Zetan fékk að kíkja aðeins baksviðs og taka myndir af tökum fyrsta þáttar.

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!