Konur í bikiní: ,,við erum allar forsíðustúlkur!” myndir

,,Þegar þú sérð sjálfan þig aldrei er eins og þú sért ekki til. Að minnsta kosti skiptir þú engu máli” sagði ein kvennanna sem núna í apríl tók sig til og gerðist forsíðustúlka í bikiníi fyrir ímyndaða forsíðu tímaritsins Sports Illustrated. Það tímarit er þekkt fyrir bikiníforsíðu á hverju vori, sem ár eftir ár vekur mikla athygli og þá ekkert síður myndirnar sem fylgja í blaðinu. Eins og hjá flestum öðrum tímaritum eru fyrirsæturnar á forsíðunni hinar glæsilegustu. Hávaxnar, grannar og með línurnar í lagi.

En við þetta eru ekki allar konur sáttar og segja forsíður sem þessar draga úr sjálfsöryggi kvenna, sem aldrei sjá auglýsingar endurspegla það litróf sem kvenlíkaminn er ,,Við erum allar forsíðustúlktur” sagði Sheridan við Buzzfeed þegar hún var spurð að því hvers vegna konurnar tóku sig til og sviðsettu sjálfan sig á forsíðu tímaritsins. Hún sagði að myndatakan hefði farið fram á Malibuströnd einn sólríkan dag. Hópur kvennana sem tók þátt var af öllum stærðum og gerðum. Hávaxnar, lávaxnar, mismunandi að húðlit, ein í hjólastól og svo mætti lengi telja. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á ströndinni þennan dag.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Og útkoman...

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!