,,Hefur þig alltaf langað til að taka þátt í orgíu?” segir í auglýsingu frá klámframleiðandanum Pornhub, sem í þessari viku tilkynnti nýjung: Sýndarveruleikagleraugu sem bæði er hægt að nota með android eða iOS símum. Margar tegundir af heyrnartækjum ganga með gleraugunum og sagði aðstoðarforstjóri Pornhub, Corey Price, að með sýndarveruleikagleraugunum myndu ,,villtustu fantasíur notenda rætast.”
Nú eru klámsýndarveruleikagleraugu svo sem ekki alveg ný á nálinni en hafi einhverjir haldið að sýndarveruleiki yrði aðeins til að láta drauma um ferðalög til framandi landa eða hasar í bíómyndum verða að veruleika, er það kolrangt. Pornhub er klámrisi sem 60 milljónir notenda nota á dag. Í frétt Huffingtonpost segir að Pornhub geri ráð fyrir að notendur sýndarveruleikagleraugnanna verði orðnir um einn milljarður árið 2025, en fyrirtækið er líka að þróa videóleiki og fleiri aukaafurðir með klámi.
Vefsíðan Buzzfeed gerði smá tilraun og bað fólk um að prófa klámsýndarveruleikagleraugu. Þáttakendur voru af báðum kynjum og þið getið séð viðbrögðin þegar myndbandið hefur spilast í um 1 mínútu.
Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!