Kim kardashian í hlutverki barbie: nýjar myndir!

Kim Kardashian birti nokkrar myndir á netinu, úr tökum frá síðustu viku fyrir tímaritið Kurv. Hún segir tökurnar hafa verið þær erfiðustu sem hún hafi nokkurn tíman farið í, en er ánægð með útkomuna. Stílisti verkefnisins var Clyde Haygood, sem vildi ná Kim með Barbie útliti og bera myndirnar keim af því.

\"\",,Ég vann rosalega mikið þennan dag. Þetta var eitt erfiðasta tökuverkefni sem ég hef nokkurn tíman gert. Við vorum svo skilvirk og náðum að klára, en dagurinn var stífur og ég ánægð með útkomuna.\"

Til að ná Barbie útlitinu, þurfti Kim að lita á sér hárið ljóst en hún notaði líka hárkollur. Á bloggsíðuna sinni segir Kim að mikil áhersla hefði verið á að ná ljósa blænum á myndunum, enda vitað að hún verður ekki með svona ljóst hár lengi. Framundan eru nefnilega tökur á fyrstu ilmvatnsherferð Kim og fyrir þær þarf hún að lita hárið á sér aftur dökkt:

,,Ég þarf að fara í tökur fyrir fyrstu ilmvatnsherferðina mína og þeir vilja mig dökkhærða á þeim myndum.\"

Greinilega nóg að gera hjá þessari 35 ára gömlu sjónvarpsstjörnu.

\"\"

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!