Karlmenn sendu henni dónalegar myndir: þetta gerði hún!

Emily Sears er áströlsk fyrirsæta sem er búsett í Los Angeles í Bandaríkjunum. Hún hefur heldur betur verið að vekja athygli í fjölmiðlum síðustu daga, en það þó fyrir allt, allt annað en fyrirsætumyndir.

Emily fann nefnilega leið, til þess að stöðva karlmenn sem eru að áreita hana með kynferðislegum myndum. Þær hefur hún fengið margar sendar til sín á samfélagsmiðlum eins og Instagram. 

\"\"Typpamyndir eru þá helstu myndirnar.

Typpamyndirnar fær Emily í pósthólfið sitt á Instagram, en þar á hún um 2,3 milljónir fylgjenda. Hún var við það að gefast upp á Instagram, eingöngu vegna þessara mynda. Að hætta þar, var hins vegar ekki valkostur, enda er Instagram í dag orðið mjög mikilvæg tekjulind fyrir fyrirsætur.

En síðan datt Emily snjallræði í hug! 

Emily fór að skoða ,,profile-síður,” sendenda typpamyndanna. Þar sá hún að oft voru þetta karlmenn, sem greinilega eiga kærustur, sambýliskonur eða eiginkonur. Á sínum eigin síðum virðast þeir hinir vænstu menn og eru í alls kyns samskiptum við vini og vandamenn á samfélagsmiðlunum. Emily notaði þessa aðferð, til að hafa uppi á kærustunum.

Þeim hefur hún síðan sent skjáskot af typpamyndum og skilaboðum frá karlmönnunum, sem hún hefur fengið til sín. Hún hefur líka skrifað ummæli á vegg þeirra og spurt þá hvað þeir telji að vinir, frænkur og frændur, myndu segja, ef þau vissu að hann væri að senda sér typpamyndir og dónalegar orðsendingar eins og hann væri búinn að vera að gera. 

Að sjálfsögðu hefur þessi sóknarleikur Emily vakið athygli, þótt eflaust hafi margir lent í vandræðum heima fyrir. En við Huffingtonpost sagði Emily:

,,Skilaboðin sem ég vil í raun koma á framfæri er að þetta er eitthvað sem margar konur eru að lenda í, ekki bara fyrirsætur.”

Sumir karlmenn hafa gengið skrefinu lengra og sent Emily myndir eða myndbönd þar sem þeir eru að fróa sér. Emily hefur þá tekið skjáskot, sent afrit til kærustunnar og látið vita. 

\"\"

Markmiðið hennar er að koma í veg fyrir kynferðislegt áreiti á netinu:

,,Það er ágætt að minna fólk að það er ábyrgt fyrir því sem það segir eða gerir á netinu. Hættið því að segja og gera eitthvað á netinu, sem þið mynduð ekki gera auglitis til auglitis.

Ég er þá ekki einungis að tala um typpamyndir, heldur einnig önnur form af einelti og áreiti.”

Emily hefur líka nýtt sér aðra samfélagsmiðla og haft uppá sendendum þannig. 

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!