Karlar hneppa hægra megin frá en konur vinstra megin: hvers vegna?

Vissir þú að tölur á skyrtum karlmanna eru hægra megin, en tölur á blússum fyrir konur eru vinstra megin? Þetta á við í langflestum tilfellum þótt flíkurnar teljist nánast eins að öðru leyti. Og það merkilega er að þessi munur á sér  aldagamla sögu. Hver hin raunverulega skýring er, veit eflaust enginn en margar kenningar eru þó til. Zetan rennir hér yfir þær helstu, enda nokkuð skemmtilegar sögur. 
 
1. Kenningin um ákvörðun Napóleon Bonaparte.
Napóleon Bonaparte var strítt af konum og lét breyta kvenskyrtum í kjölfarið. 

Já, þetta hljómar hálfskringilega en svo er sagt að eftir að Napóleon fór að birtast á fjölmörgum málverkum, alltaf standandi í þeirri stellingu að hann var með hægri hendi innan undir skyrtu og jakka (sem er helst hægt ef tölurnar eru hægra megin), fóru konur úr ýmsum stéttum að herma stellinguna eftir.

Þetta var eitthvað sem Napóleon var sagður viðkvæmur fyrir og leit á sem stríðni eða sér til lítillækkunar. Hann gaf því út þá skipun að hnepptar flíkur kvenna, skyldu hannaðar þannig að tölurnar á þeim væru vinstra megin.

\"\"
 
2. Konur klæddar af þjónustukonum, en karlmenn klæddu sig sjálfir.
Önnur kenning er sú að tölurnar á blússum kvenna séu vinstra megin, vegna þess að lengi vel voru hefðarkonur klæddar af þjónustufólki, en hefðarmenn klæddu sig sjálfir þótt þeir nytu aðstoðar þjónustufólks.

\"\"

 

 

3. Karlmenn með sverð í hægri hendi, konur með börn í þeirri vinstri.
Þá er ein kenningin sú að það hafi verið auðveldara fyrir karlmenn að hneppa skyrtum með tölum hægra megin, því þeir voru vopnaðir sverðum sem þeir héldu á með hægri hendi.

Karlmenn notuðu þá vinstri hendi til að hneppa tölunum, sem er auðveldara ef tölurnar eru hægra megin.

\"\"

4. Brjóstagjöf kvenna.

Að sama skapi, var sagt auðveldara fyrir konur að nota hægri hendi til að hneppa tölum á blússum, því þær voru oft á tíðum með barn í fanginu og héldu þá á barninu með vinstri hendi.

\"\"


5. Hestavenjur og siðir.
Karlmenn á leið í bardaga, riðu vinstra megin á stíg til að geta athafnað sig með þeirri hægri (sverðshendinni) ef eitthvað kom uppá. Mikilvægt var að engar flíkur gætu flækst í sverðinu eða tafið fyrir skjótum viðbrögðum og því voru tölurnar á skyrtum þeirra hægra megin.
 
Konur hins vegar, sátu hesta á annarri hlið og sneru þá til vinstri. Með því að vera með tölurnar vinstra megin á blússunni, voru minni líkur taldar á að vindur gæti sveipað upp fatnaði þannig að sæist í bert hold.

\"\"


6. Jafnrréttisbaráttan á sínum tíma? 
Þá segja sumir að liður í jafnréttisbaráttu kvenna á öldum áður, hafi falist í því að konur mættu klæðast skyrtum eins og karlmenn. Þó er sagt að konur hafi viljað undirstrika sérstöðu sína og mismun frá karlmönnum og því hafi sú hugmynd komið upp, að flíkurnar væru eins en tölurnar sitthvoru megin.


7. Hentar framleiðendum vel í dag. 
Það að flestar skyrtur séu enn með tölur á karlmannsskyrtum hægra megin en vinstra megin fyrir konur, segja síðan margir að einfaldlega henti mjög vel í þeirri fjöldaframleiðslu sem stunduð er á fatnaði í dag.

Að halda í þennan aldagamla sið, hjálpar hreinlega til við flokkun og aðgreiningu í verksmiðjum. 

\"\"

Hd: Scoophoop

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!