Kannast þú við þessi einkenni? vatn, kaffi, te....allt telur

Hvort sem við erum að drekka vatn eða einhvern annan vökva, er deginum ljóst að líkaminn þarf vökva og það nokkuð vel af honum. Allur vökvi telur, ekki bara vatn. Það á þá líka við um kaffi, te, djús, orkudrykki eða hvað annað sem þú mögulega drekkur yfir daginn.

Einn þeirra blaðamanna sem skrifar efni fyrir hinn vinsæla Dr. OZ í Bandaríkjunum, tók sérfræðing tali og spurði hvort kenningin um að drekka 8 glös af vatni á dag, væri rétt varðandi það hvað líkaminn þarfnast af vökva á dag. ,,Það er of mikil einföldun,” var svarið, en að sögn viðkomandi sérfræðings, getur það verið mismunandi eftir dögum hvað líkaminn þarf mikinn vökva. Þar þarf að taka tillit til þess hversu mikið maður hreyfir sig, hvernig veðrið er, matarræðið þann daginn og margt fleira.

Hins vegar er ekki gott fyrir líkaman að fá ekki nægilegan vökva og getur ofþornun leitt til ýmissa kvilla. Svo sem ógleði, uppköst, niðurgang eða hita. Hér eru 7 vísbendingar sem gott er að fylgja eftir.

1. Þú ert þyrst(ur) Að vera þurr í munni og finna til þorsta, eru auðvitað augljósustu merkin.

2. Þynnka. Að vinna úr alkóhóli, þýðir að líkaminn þarf vatn. Mælt er með því að drekka að minnsta kosti fjórðungi meira en venjulega af vökva. Langbest væri að drekka eitt glas af vatni, samhliða hverju glasi af áfengi sem þú drekkur. Það dregur úr þynnkunni og hjálpar líkamanum að vinna úr áfenginu.

3. Svimi. Ef þú finnur til svima, þá gæti það verið merki um að líkamanum vantaði vökva.

4. Þvagið er dökkt á litinn. Ef þvagið er dökkt á litinn, þýðir það að líkaminn hefur ekki haft nægilegan vökva til að vinna úr þvaginu áður en þú pissaðir. Þetta þýðir í rauninni að þvagið er óhreinna fyrir vikið, því líkaminn þarf vökva til að eiga auðveldara með að skila af sér úrgangi í formi þvags. Ef þú tekur eftir þessu, er gott að drekka nokkur glös af vatni strax á einum klukkutíma og fylgjast með því hvort þú sjáir ekki litinn breytast á þvaginu.

5. Þreyta. Þú getur fundið til þreytu, þegar líkamanum vantar vökva. Það er hreinlega vegna þess að líkaminn og blóðið þarf vökva til að vinna sína vinnu. Ef líkamanum fer að vanta þennan vökva, þarf hjartað að hafa meira fyrir því að dæla blóði til líkamans og fer því að slá örar en ella.

6. Heldur ekki fókus. Vökvi er ekki aðeins nauðsynlegur fyrir líkaman, heldur einnig heilan og taugar. Þannig getur ofþornun haft áhrif á skap, orku og ekki síst getu þína til að vera vakandi og halda fókus á því sem þú ert að gera.

7. Hægðartregða. Vökvi hjálpar þér til að melta mat og vinna úr því sem þú borðar. Þetta þýðir að eitt dæmið um að þig vanti meiri vökva, er hægðartregða.

Grein Lambeth Hochwald má sjá í heild sinni HÉR.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!