Justin bieber litaði hárið fjólublátt!

,,OMG” mun sjást víða á Twitter og Facebook í kvöld, því Justin Bieber er búinn að lita á sér hárið fjólublátt! Hárið er þó ekki einungis fjólublátt, því það er litað silfurgrátt og fjólubrátt, með ljósum lokkum í endana. Myndina af nýju hárgreiðslunni birti hann á Instagram, þar sem hann stillti sér upp á húddinu á Ferrari.

Ekki það að Justin hefur svo sem oft breytt um hárgreiðslu og þá jafnvel farið ótroðnar slóðir. Sem dæmi má nefna að í desember 2014, litaði hann það alveg ljóst en nokkrum vikum síðar dökkt.

Bieber var ljóshærður þegar hann kom til Íslands í fyrra. En hvernig ætli hárið á honum verði á tónleikunum hans í Kórnum næsta haust?

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!