Jerry hall (59) og rupert murdoch (84) trúlofuð

Fyrrum fyrirsætan Jerry Hall og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hafa tilkynnt um trúlofun sína. Þetta er fyrsta hjónaband Jerry Hall, því þótt hún og söngvarinn Mick Jagger hafi verið í áralöngu sambandi, þá voru þau ekki gift. Murdoch er þó öllu veraldarvanari, því þetta er fjórða hjónabandið hans.

Parið hefur ekki verið lengi saman, því þau byrjuðu að hittast í október síðastliðnum. Fjölmiðlar hafa auðvitað fylgst náið með og að sjálfsögðu var trúlofunin fyrst birt í einum fjölmiðli Murdochs, The Times.

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut: 

Ekki missa af þættinum Lóa og lífið kl.20 á þriðjudagskvöldum. Þar ræðir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir við pör, systkini, vini og aðra tengda aðila sem hafa kynnst í gegnum vinnu eða stundað áhugamálin saman af kappi. Líflegur og skemmtilegur spjallþáttur á Hringbraut. Endursýndur um helgar.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!