Jamie-lynn sigler (úr sopranos): með ms sjúkdóminn

Jamie-Lynn Sigler, sem lék dótturina í Sopranosþáttunum, er með MS sjúkdóminn. Frá þessu sagði hún í viðtali við People, en sagði greininguna á sjúkdómnum ekki nýja frétt, heldur væri hún fyrst núna tilbúin til að ræða sjúkdóminn.

Jamie-Lynn segist hingað til hafa verið nokkuð einkennalaus en geri sér vel grein fyrir því að þannig verði það alls ekki endalaust og því séu erfiðleikar framundan. Hingað til hefur hún þó verið heppin, en 15 ár eru síðan læknar greindu hana með MS:

,,Ég get ekki labbað lengi án þess að hvíla mig. Ég get ekki hlaupið. Fyrir mig er ekkert sem heitir að leika einhver hetjuhlutverk. Tröppur og stigar? Jú, ég get gengið upp stiga, en finnst það ekki auðvelt.”

Jamie-Lynn segir að það erfiðasta við að hafa haldið sjúkdómnum leyndum, hafi verið að fela það í vinnunni, hvers vegna hún ætti í verulegum erfiðleikum suma daga:

,,Stundum vantaði mig bara að hvíla mig í fimm til tíu mínútur og hlaða þannig batteríin, en ég gerði það ekki því ég var svo hrædd um að einhverjum færi að gruna eitthvað,”

segir Jamie-Lynn þegar hún ræðir vinnuna sem fylgdi Sopranos þáttunum. Í viðtalinu segir hún stöðuna í dag bærilega, en Jamie-Lynn er nýgift og á með eiginmanni sínum einn son. Hún segir lífið leika við sig, hún sé hamingjusöm og vilji ekki halda neinu leyndu lengur.

Með eiginmanni og syni.

\"\"

Sopranos fjölskyldan.

\"\"

Jamie-Lynn er 34 ára gömul. Hún var því aðeins 19 ára gömul þegar hún var greind. Henni fannst það erfitt þá, en segir tíman ekki laga þá upplifun alveg. MS sjúkdómurinn sé eitthvað, sem erfitt er að sætta sig við að vera með.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!