Jada pinkett smith hótar að mæta ekki á óskarinn

Annað árið í röð, eru aðeins hvítir leikarar tilnefndir til Óskarsverðlauna í Bandaríkjunum. Jada Pinkett Smith, eiginkona Will Smith, er ein þeirra sem er óánægð með þetta. Á Facebook í dag, birti hún stöðufærslu þar sem hún veltir því fyrir sér, hvort litað fólk ætti að hætta að taka þátt í verðlaunahátíðinni. Hún segir litað fólk ekki metið að verðleikum, það sé sjálfsagt að fá það til að afhenda öðrum viðurkenningar, án þess að hljóta þau sjálf.

,,En ætti litað fólk að draga sig úr þáttöku í þessari hátíð? Það er aðeins hægt að koma fram við okkur, á þann hátt sem við leyfum sjálf”

\"\"

Stöðufærslan hefur auðvitað vakið mikla athygli, en þó ekki síður umræðu því þetta er annað árið í röð, sem enginn svartur leikari er tilnefndur til Óskarsverðlauna. Þar þykir bæði gengið fram hjá Will Smith, eiginmanni Jödu, fyrir hlutverk sitt í myndinni Concussion, Samuel L. Jackson, fyrir hlutverk sitt í myndinni The Hateful Eight og síðan Idris Elba, fyrir hlutverk sitt í Beasts of No Nations. Fleiri þykja standa undir því að vera tilnefndir og þetta eru því aðeins örfá dæmi.

#1. Will Smith í Concussion

\"\"

#2. Samuel L. Jackson The Hateful Eight 

\"\"

#3. Idra Elbis Beasts of No Nations

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!