Íslensk hjón með 24 börn í fóstri

Í þættinum Ég bara spyr á Hringbraut er rætt við hjón sem síðastliðinn rúman áratug, hafa verið með 24 börn í fóstri. Fósturbörn og fósturforeldrar eru umræðuefni þáttarins og hjónin sem rætt er við heita Guðbergur Grétar Birkisson og Anna Grétarsdóttir. Þau segjast hafa orðið fósturforeldrar fyrir tilviljun, en finnst starfið gefandi og eru í miklum tengslum við mörg þeirra barna sem dvalið hafa hjá þeim í lengri eða skemmri tíma. Rakel Sveinsdóttir er umsjónarmaður þáttarins og hún spyr meðal annars um, hvernig það gangi fyrir sig að taka barn inn á heimilið sem kannski hefur átt erfitt félagslega eða heima fyrir. ,,Að opna hjartað sitt” segir Guðbergur vera lykilatriði og tekur fram að þeir fósturforeldrar sem ekki ná að gera það með hverju því barni sem kemur inn á þeirra heimili, ættu kannski ekki að vera að taka að sér börn í fóstur.

Í þættinum er einnig rætt við Bryndísi S. Guðmundsdóttur hjá Barnaverndarstofu sem segir ýmsar ástæður fyrir því að börn séu vistuð í fóstri. Alls eru þetta ríflega 300 börn á ári en vistun þeirra getur verið afar mismunandi. Þannig séu sum börn í fóstri í stuttan tíma á meðan önnur eru í varanlegu fóstri, sem þýðir að barnið dvelst þá á heimili fósturforeldra til 18 ára aldurs. Þá sagði Bryndís nokkuð um það að börn séu ættleidd af fósturforeldrum eftir að þau eru 18 ára, en ættleiðingar eru ekki mjög algengar á meðan börn eru í fóstri.

Hér má sjá brot úr þætti gærkvöldsins þar sem rætt er við hjónin Guðberg og Önnu en þátturinn verður endursýndur, m.a. um komandi helgi.

Þátturinn Ég bara spyr byggir á spurningum sem áhorfendur senda inn til Spyr.is. Þar spurði lesandi um fjölda barna sem eru vistuð á ári hverju og hver þróunin hefur verið síðastliðin ár. Svar Barnaverndarstofu má sjá HÉR.