Í guðs bænum: ekki taka smálán því svona er vítahringurinn....

Hringbraut mun endursýna í kvöld þátt um smálánafyrirtækin, en það er þátturinn Ég bara spyr sem tekur þá umræðu fyrir. Þátturinn var sýndur fyrir jól og þar rætt við móður ungrar konu, sem lenti í því síðastliðið haust að smálánafyrirtækin tæmdu bankareikninginn hennar! Og það sem verra er: Í þættinum kemur fram að smálánafyrirtækin hafa fulla heimild til þess að gera nákvæmlega það. Þetta er aðeins brot af því sem fram kemur í þætti kvöldsins, því þar segir móðirin frá því hvernig nokkrir tugir þúsunda, voru fljótir að verða að mörg hundruð þúsund króna skuld. Margir telja að þeir sem taki smálán séu einungis ungt fólk en svo er ekki. Þannig segist viðmælandi þáttarins vita að til dæmis einstæðar mæður eigi það til að reyna að redda sér fyrir mánaðarmót, því þær eiga ekki til mat fyrir börnin sín.

Vítahringurinn er hræðilegur.

En það er ekki nóg með að skuldirnar séu fljótar að hlaðast upp, ef smálán er ekki greitt á réttum tíma, eða að smálánafyrirtækin hafi heimild til að tæma bankareikninga fólks. Nei, margir virðast lenda í þeirri gryfju að taka smálán, til að greiða smálán og síðan koll af kolli. Vanskilakostnaðurinn sem fellur til, er síðan fljótur að vinda uppá sig og í þætti kvöldsins kemur fram að foreldrar ungu konunnar sem sagt er frá, enduðu með að greiða hundruði þúsunda króna til smálánafyrirtækjanna.

Í fyrirspurn sem vefsíðan Spyr.is fékk frá ungum lesanda, var líka spurt:

,,Erfast smálánaskuldir til foreldra minna, ef ég tek mitt eigið líf?”

Þetta er í rauninni setning sem segir allt sem segja þarf, um líðan viðkomandi. Að sögn Rakelar Sveinsdóttur, umsjónarmanns þáttanna, voru viðbrögðin við þættinum mikil. Í raun svo mikil að viku síðar var gerður þáttur þar sem rætt var við þingmenn og Eyrúnu Magnúsdóttur blaðamanns á Morgunblaðinu. Hún hefur farið í mikla rannsóknarvinnu til að finna út hverjir eiga smálánafyrirtækin. Það eru sömu aðilar og eiga bland.is, moi.is og fleiri vefsíður, en fyrst og fremst segir Eyrún að eigendur leggi mjög mikið á sig til að hafa eignarhaldið sem óljósast. Viðtalið við Eyrúnu má sjá HÉR.

Þá hafa kannanir sýnt að lántakendur sem skulda smálán, upplifa mikla skömm þegar þeir komast ekki út úr þeim vítahring sem smálánatakan getur verið. Þetta sé því hópur sem segi oft ekki frá þeirri slæmu stöðu sem fólk kemst í og almennt er þetta ekki hópur, sem á greiðan aðgang að bankalánum.

\"\"

,,Þetta eru samt engin krúttlán, heldur okurlán...”

sagði Eyrún, sem vísar þar í að með því að tala um ,,smálán” í staðinn fyrir ,,okurlán,” þá virka lánin eins og þetta séu bara einhver pinkulítil lán. Hið rétta sé að þetta eru lán sem bera mörg þúsund prósent í okurvexti og vanlíðan lántakenda sem festast í innheimtu þeirra, geti verið ofboðslega mikil.

Ég bara spyr er á dagskrá kl.21.30 í kvöld og kl.23.30. Þátturinn verður einnig endursýndur um næstu helgi. Þá hefur Zetan upplýsingar um, að unnið er að fleiri þáttum um smálánin.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!