Í alvörunni: gættu að því hvað þú segir við konu sem er nýbúin að eiga!

Í guðs bænum: Ekki fara að tala við konu, sem er nýbúin að fara í gegnum það dásamlega afrek að fæða barn, um magan á henni. Ekki segja eitthvað óhugsað, eða reyna að slá á einhverja létta strengi um að hún líti enn út fyrir að vera ófrísk. Þetta á líka við um konur sem eru nýbúnar að eiga og þú þekkir mjög vel: konan þín, systir þín, mágkonan þín, vinkonan þín, systir þín, samstarfskonan þín. 

Það skiptir nefnilega engu máli hversu vel þú þekkir viðkomandi: Henni mun ekki finnast brandarinn fyndinn og hún yfir höfuð er ekki til í neinar samræður um magan á sér, nema þá að hún bryddi upp á því sjálf!

Því staðreyndin er þessi:

Já, konur líta oft enn út fyrir að vera ófrískar eftir að þær fæða.

Og hver er hissa? Var þessi líkami ekki að fara í gegnum allar þær breytingar sem meðganga kallar á?

Zetan rakst á mynd sem er að slá í gegn á veraldarvefnum og bloggarinn Giovanna Fletcher birti. Giovanna er eiginkona og barnsmóðir Tom Fletcher í hljómsveitinni McFly, en þau eignuðust sinn annan son fyrir 11 dögum síðan.

Giovanna lenti í því um daginn að einhver ókunnugur, benti á magan á henni, fór að hlæja og sagði síðan eitthvað um að hún liti út fyrir að vera ófrísk enn þá.

Á Instagram skrifaði hún meðal annars:

,,Þessi orð sátu í mér. Skiljanlega.....

...já, ég er enn með bumbu. En þetta er líka bumban sem skilaði af sér lítilli veru sem ég elska meira en ég get með orðum lýst.

Þetta er því kraftaverkabumban mín.

Bumban sem jú, mun smátt og smátt hverfa en gerði líkama mínum kleift að geta gert það sem hann gerir....

Og fyrir það verð ég ævinlega þakklát.”

Zetan tekur undir þessi orð. Óléttubumbur eru nefnilega kraftaverkabumbur. Hvort sem annað fólk sér þær fyrir eða eftir fæðingu. Þær hafa sitt hlutverk og eru hluti af þeirri dásemd að geta gengið með og fætt börn.

Amen.

----

Hér má sjá myndina sem Giovanna birti á Instagram.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!