Hvers vegna hætti charlie sheen á hiv lyfjunum?

Í þættinum Dr. Oz, sem sýndur var síðastliðinn þriðjudag í Bandaríkjunum, var rætt við Charlie Sheen, þar sem hann sagðist vera hættur á HIV lyfjunum sínum. Ástæðan væri sú að hann vildi frekar prófa aðrar leiðir og meðferðir. Hins vegar kom fram á vefsíðunni People í dag, að Sheen væri byrjaður aftur á lyfjunum.
 
Ástæðan fyrir því að svona stutt leið á milli, var að Dr. Oz þátturinn var tekinn upp þann 8.desember síðastliðinn. Sheen var þá á því stigi að prófa meðferð hjá lækni í Mexíkó. Þegar heilsunni fór hins vegar hrakandi, byrjaði hann strax aftur á HIV lyfjunum.


Í Dr. OZ þættinum, var rætt við mexíkóska lækninn, sem var svo sannfærður um að meðferðin sín myndi virka, að hann sagðist hafa spruatað blóði úr Sheen í sjálfan sig. Bjartsýni Sheen hefur þó verið fljót að dala, því á Newser kemur fram að Sheen hafi byrjað á lyfjunum um leið og hann steig aftur upp í flugvélina til að fljúga heim.

Ekkert kemur fram í fréttum ytra, hvort umrædd blóðgjöf mexíkóska læknisins, hafi haft áhrif á hann sjálfan!

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!