Hvers vegna fara svona margir lottóvinningshafar á hausinn?

Zetan rakst á áhugaverða grein á vefsíðunni Fortune. Þar er þeirri spurningu velt upp, hvað gerist hjá fólki sem vinnur háar upphæðir í lottó. Erlendis er það víðast hvar þannig að lottópottarnir eru margfalt hærri upphæðir en við þekkjum á Íslandi. Og kannski sem betur fer?

Í grein Fortune kemur fram að um 44% þeirra sem hafa unnið stóra vinninga í lottó í Bandaríkjunum, fara á hausinn innan 5 ára. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem gerð var í fyrra. Samkvæmt þeirri könnun, fer tæplega þriðjungur alla leið í gjaldþrotaskipti, sem þýðir að vinningshafinn endar með að vera verr settur en hann var, áður en hann vann stóra vinninginn. 

Þá sýndi könnunin jafnframt að stór hópur þeirra sem hafa unnið háar upphæðir í lottó, einangrast frá fjölskyldu og vinum og fara að sýna merki um þunglyndi, fara að glíma við lyfja- eða drykkjuvandamál, hjónaskilnaðir eru algengir og líkur á sjálfsvígi aukast.

En hvað veldur? 

Nokkur atriði ber að nefna segir í grein Fortune. Þar er til dæmis mælt með því að þegar að fólk vinnur háar upphæðir í lottó, þá eigi það að byrja á því að ræða við fjármálaráðgjafa, ekki fjölskyldu og vini. Eins er mælt með því að fólk fari ekki strax að spreða út um allt. Kaupa sér dýran fatnað, skartgripi, bíla eða jafnvel gefa peninga. Í grein Fortune segir að það sé ótrúlega algengt að fólk í kringum vinningshafana fari að soga til sín peninga með einhverjum hætti. Svo algengt er þetta, að vinningshafinn fer oft á tíðum að fá samviskubit ef hann lætur ekki undan að láta fólk fá peninga eða gjafir, því þetta fólk tengist viðkomandi á einhvern hátt.

Í grein Fortune er því mælt með því að ráða frekar fjármálaráðgjafa, til að sjá um fjármagnið. ,,Talaðu við ráðgjafan minn,” getur viðkomandi þá frekar sagt við vini og vandamenn.

Slæmar fjárfestingar eru einnig talin ástæða fyrir því hversu oft illa fer. Gylliboðin streyma inn til nýja milljónamæringsins og skiptir þá engu hvort verið er að bjóða hlutabréf eða leggja til að viðkomandi opni sitt eigið veitingahús. Allir eru með frábærar hugmyndir til að leggja til, óháð því hvort viðkomandi vinningshafi hafi nokkra reynslu eða vit á rekstri.

Þá er skattahlutinn sagður enn ein gryfjan. Í Bandaríkjunum er það svo að upphæðirnar eru himinháar en 45% af þeirri upphæð, á þó að greiðast í skatt. Sá eða sú sem gefur peninga til vina og vandamanna, greiðir ekkert minni skatt þótt hann eða hún spreði. Skatturinn fær á endanum sitt. 

Skilaboðin í grein Fortune eru því skýr: Í stað þess að láta sig bara dreyma um stóra vinninginn, hugsaðu þá svolítið um það, hvernig þú ætlar að passa vel upp á það að vinningurinn færi þér örugglega hamingju og betra líf.

\"\"

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

SKRÁÐU NETFANGIÐ ÞITT HÉR!

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.