Hvernig stendur á því að við týnum þessum hlutum alltaf?

Þið ykkar, sem eruð svo fullkomin að þið týnið aldrei neinu: Hættið bara að lesa hér! Þið hin, endilega lesið áfram. 

Þið eruð nefnilega ekki EIN.

Það eru fleiri eins og ÞIÐ.

\"\"

Já, við erum að tala um fólkið sem TÝNIR alltaf eftirfarandi hlutum:

  1. Bíllyklunum: Hvar eru þeir?
  2. Veskið: Gleymdi ég því?
  3. GSM síminn: Hjálp!!!
  4. Sólgleraugun: Nýbúin(n) að kaupa þau!
  5. Pennum

Á listinn við þig? Þá skaltu halda áfram að lesa...

Wall Street Journal fjallaði um þetta um árið og í þeirri grein kom fram að það eru allt að þriðjungur fólks, sem eru alltaf að týna hlutum. Og það sem verra er: Meðalmaðurinn týnir hlutum þá um 9 sinnum á dag og samtals ver sá hinn sami um 15 mínútum á dag í að LEITA!

En hér eru nokkur ráð til að hjálpa til við að finna hlutina aftur:

1. Ef það er ekki áríðandi að finna hlutinn strax, bíddu þá aðeins og byrjaðu ekki að leita fyrr en þú ert komin(n) með einhverjar hugmyndir um hvar hluturinn gæti verið.

2. Hvar ætti hluturinn að vera? (hver er ,,rétti” staðurinn)

3. Hvar notaðir þú hlutinn síðast?

4. iPhone, iPhone, iPhone.... já segðu nafn hlutarins upphátt aftur og aftur (svona eins og að muldra), þetta virkar!

5. Farðu aftur á staðinn þar sem þú hélst að hluturinn væri og athugaðu hvort það hefur ekki bara eitthvað farið yfir hann, hann dottið til hliðar eða sambærilegt. Oft er hann á sínum stað, eitthvað villir þér bara sýn!

6. Ef ekki áríðandi, bíddu þá bara.... oft gufa hlutir upp en síðan bara allt í einu: Pfúff, þarna er hann!

Spurning um að deila þessu til vina og vandamanna á Facebook? (kannski ,,tagga\" þann sem greinin á við?).

He, he...

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Frábærir þættir með Völu Matt: Besti maturinn! Keppendur fá 3.000 krónur til að elda dýrindis máltíð. Á dagskrá kl.20 á miðvikudagskvöldum!