Hver er staðan hjá kourtney kardashian og scott disick núna?

Nú eru 6 mánuðir, síðan Kourtney Kardashian og Scott Disick skildu. Þau eiga þrjú börn saman, en vangaveltur hafa verið um það hvort þau væru í rauninni skilin. Kourtney var í viðtali í spjallþætti Ellen DeGeneres og tók þar af allan vafa:

 ,,Við erum ekki saman. Mér finnst reyndar enginn dagur eins, en aðalmálið er að okkur kemur vel saman. Við eigum þrjú falleg börn.... þannig að hann verður alltaf hluti af fjölskyldunni.”

Viðtalið verður á dagskrá á mánudagskvöld, en sýnishorn úr þættinum fóru að birtast í gær og án efa margir sem bíða spenntir. Til dæmis voru sögusagnir í fyrra um Kourtney og Justin Bieber, en þau sáust úti á lífinu saman. Kourtney er 36 ára en Justin Bieber 21 árs. Hann hefur verið vinur systranna lengi. Í útvarpsviðtali í fyrra, sagði Kourtney þó að hún og Justin væru bara vinir. Þá sást Scott úti að borða með fyrirsætunni Linu Sandberg á dögunum. Því spurning um hvort Ellen fái einhverjar nýjar fréttir af ástarmálum Kourtney og Scott næsta mánudag? 

Eins og sjá má á þessari mynd, mætti Kourtney í viðtalið til Ellenar í gylltri stuttbuxnadragt.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!