Hvað þýðir það þegar við krotum eða teiknum ósjálfrátt á blað?

Hafið þið ekki staðið ykkur að því að krota eitthvað ósjálfrátt á blað, aftur og aftur? Hvort sem það er blað í vinnunni, bók úr skólanum eða bara einhver miði, umslag eða eitthvað annað fyrir framan þig? Oft erum við farin að korta eitthvað á blöðin, miðana eða jafnvel umslögin, áður en við vitum af og einhverra hluta vegna virðumst við meira að segja oft gera þetta þegar við erum í síma eða samtölum.  Og auðvitað er búið að túlka þetta eins og allt annað! Því um að gera að renna yfir listan sem fylgir hér að neðan og lesa sér til um það, hvað krotið eða teikningin sem passar best við þig, þýðir. ins bendum við ykkur á að skoða vel hvaða orð þið skrifið stundum niður aftur og aftur, þegar þið eruð að tala við einhvern. Hefur það orð einhverja þýðingu?

 

Fólk / fígúrur af fólki. Þeir sem teikna fólk eða einhvers konar fígúrur af fólki, eru ekki nægilega sjálfsöruggir og eiga það mögulega til að reyna að koma sér undan ábyrgð. Ef teikningarnar eru mjög einfaldar, eru tilfinningarnar ekki í nægilega góðu jafnvægi og viðkomandi langar helst að draga sig aðeins frá öðru fólki. 

Augu. Að teikna augu, endurspeglar í rauninni þann sem teiknar. Stór augu þýðir að viðkomandi er mjög félagslyndur einstaklingur. Starandi augu endurspegla að viðkomandi finnst eins og það sé verið að fylgjast með honum/henni og lokuð augu geta þýtt að viðkomandi neitar að horfast í augu við eitthvað hjá sjálfum sér.

Nafnið sitt. Þeir sem rita nafnið sitt aftur og aftur, eiga það til að vera svolítið hrokafullir. Þetta er vísbending um að viðkomandi hugsi hlutina svolítið mikið útfrá sjálfum sér, þótt verið sé að reyna að finna lausn á máli sem snertir fleiri en einungis þá.

Hringir. Þeir sem teikna hringi sem tengjast hvor öðrum, endurspegla einstakling sem vill ekki vera skilinn út undan, en líður stundum þannig. Ef þú tekur eftir því að þú ert að draga pennan í hringi, er það vísbending um að þig vanti athygli eða vin að tala við.

Dýr. Það skiptir öllu máli hvernig dýr er verið að teikna. Til dæmis þýðir teikning af tígrisdýri eða úlfi einhvers konar innbyrgða reiði. Ef það er hestur, er það merki um að þig langi til að gera eitthvað sérstakt, ef það er íkorni, þarftu umhyggju og vernd. Ljón eru oftast teiknuð af þeim sem eru yfirmenn eða hafa mikil völd og telja sig jafnvel yfir aðra hafna. Ef þú tekur eftir því að þú ert að teikna sama dýrið aftur og aftur, þá er það vísbending til þín um að undirmeðvitundin þín er að samsvara sig eitthvað við það dýr sem þú ert að teikna.

Bogalaga eða gormalaga línur eða sambærilegt. Vandamál annarra, trufla þig ekki mikið. Mögulega ertu ekki í fullkomnu jafnvægi tilfinningalega og ert jafnvel með of miklar áhyggjur af einhverju. Þegar þú ert að teikna upp bogalaga línur, er það merki til þín um að missa ekki tökin á hegðun og að þú þurfir að forðast að láta skapið bitna á öðru fólki, til dæmis með reiði eða pirring.  

Ferhyrningar, demantar eða sambærilegar teikningar. Þú ert augljóslega með einhver markmið sem þú vinnur að og eflaust vita flestir af því í kringum þig. Þú ert þrjóskur einstaklingur og mjög staðfastur. Oftast ertu mjög varkár með alla hluti og það jafnvel svo mikið að í þeim efnum máttu alveg slaka aðeins á.

\"\"

Örvar. Sumir teikna oft einhvers konar örvar. Þær geta jafnvel litið út eins og einhvers konar eldingar. Í þessum tilfellum, skiptir máli í hvaða átt örin snýr. Einstaklingur sem teiknar örvar, er félagslynd manneskja. Ef örin snýr niður, ertu frekar upptekin(n) af sjálfum þér. Ef örin snýr til vinstri, þýðir það að þú ert fastur/föst í fortíðinni. Ef hún bendir hins vegar til hægri, ertu spennt/ur fyrir framtíðinni.

Stjörnur. Margir teikna stjörnur á blað en það á við fólk, sem vill gjarnan vera í sviðsljósinu. Þetta á þó eingöngu við, ef stjarnan sem þú teiknar er ekki með of marga enda eða punkta, því þá þýðir stjarnan það gagnstæða: Viðkomandi vill þá draga sig í hlé og er mögulega að glíma við einhvers konar þunglyndi.

Blóm, ský eða sólin. Þeir sem teikna blóm, ský eða jafnvel sólina, er fólk sem er nokkuð sátt við lífið og er með hugmyndir um að eitthvað gott muni gerast í framtíðinni. Þetta fólk er mjög jákvætt að eðlisfari og í góðu jafnvægi.

Krossar. Þeir sem teikna einhvers konar krossa endurtekið á blað, eru mjög líklega með samviskubit yfir einhverju eða kenna sjálfum sér um eitthvað sem miður fór.

Lítil hús eða box. Þeir sem teikna aftur og aftur einhvers konar hús eða box, eru einstaklingar sem eru vanir að skipuleggja sig eða úthugsa svolítið helstu framkvæmdir eða aðgerðir. Þú veist hvað þú vilt og veist fyrir hvað þú stendur. Hjá þér liggja fyrir markmið til framtíðar.

Taflborð eða rammar. Þeir sem teikna ramma eins og einhvers konar taflborð, eru í einhverri stöðu sem þeim finnst frekar óþægileg. Oftast þýðir þetta að viðkomandi þarf að takast á við einhverja erfiðleika, óháð því hvort það séu erfiðleikar sem blasa alveg við. Einhverjar efasemdir eru líka til staðar hjá þeim sem teiknar, sem veltir því fyrir sér hvort hann/hún sé yfir höfuð á réttri leið eða að gera rétt.

Endurtekið munstur. Þeir sem krota á blað einhvers konar endurtekið munstur sem þó er ekkert sérstakt, er fólk sem vill ekkert fremur en friðsælt líf og jafnvægi. Þessir einstaklingar vilja hafa fastar rætur og leggja áherslu á að byggja upp fjölskyldu og tengsl.

Hd.Brightside

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!