Hundur bjargaði barni með sykursýki (myndir)

Sjö ára kanadískur drengur var hætt kominn eftir blóðsykurfall, en hann er með sykursýki sem hann greindist með þegar hann var tveggja ára. Drengurinn heitir Luke Nutall og er með sykursýki 1. Það þýðir að hann er með insúlínháða sykursýki.

Að heyra hvað varð drengnum til bjargar, er hins vegar ótrúlega falleg saga. Þannig var að foreldrar Luke, fengu sér hund fyrir nokkrum árum síðan. Hundurinn er svartur Labrador hundur og það merkilega er, að hann er sérstaklega þjálfaður til að aðstoða Luke. Hundurinn heitir Jedi og greinir með lykarskyni sínu, hver blóðsykur Luke er.

Um miðja nótt í síðustu viku, vaknaði móðir Luke, Dorrie, við það að Luke kemur á hlaupum inn í svefnherbergið hennar. Þar lét hann öllum illum látum og hoppaði meira að segja uppí rúm til að vekja hana.

Þegar Dorrie kom síðan að Luke, var drengurinn nánast meðvitundarlaus. Blóðsykurinn hafði þá fallið mjög mikið og ástandi hans mátti því lýsa sem mjög hættulegu.

Sagan af björgun Luke, vakti síðan athygli á dögunum, þegar Dorrie sagði frá henni á Facebooksíðunni sinni. Þar sagði hún:

,,Það voru engar vísbendingar um að eitthvað væri í vændum og satt best að segja var enginn að hugsa neitt sérstaklega um blóðsykurinn eða sykursýki yfir höfuð. Lífið gengur bara sinn vanagang hjá okkur eins og öðrum, en guði sé lof: Sem betur fer eigum við Jedi.”

Með stöðufærslunni birti Dorrie þessa mynd, sem hún tók síðar um nóttina.

 \"\"

Í viðtali við CBS, sagði Dorrie að þjálfun Jedi hefði hafist þegar hann var aðeins 11 vikna hvolpur. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, eru Luke og Jedi hinir bestu félagar og hafa verið síðustu árin.

\"\"

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

SKRÁÐU NETFANGIÐ ÞITT HÉR!

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.