Hún hélt að hún væri ein í húsinu.... (myndir)

Í Ontario í Kanada, keyrði Leslie David um borgina og nærliggjandi svæði og myndaði auð hús. Þau voru flest í mikilli niðurníslu og mörg hver höfðu þau verið skilin eftir með ýmsum innanstokksmunum. Leslie var heilluð af þessum húsum og tók myndir í gríð og erg. Þær birti hún á Instagramsíðunni sinni ,,The Tourist.” Með myndunum sem Leslie tók, vildi hún sýna fólki hversu magnaðar sögur væru í rauninni á bakvið hvert autt heimili.

Einhvern tíman bjó þar fólk:

Hverjir? Hvernig var lífið þeirra? 

\"\"

Hvaða saga var á bakvið fjölskylduna eða þá sem þar bjuggu?

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Rauða húsið.

En einn daginn, rakst Leslie á hús sem reyndist alls ekki tómt. Í fyrstu leit það þó út eins og hvert annað eyðibýli sem hún hafði rekist á. Þarna var allt í niðurníslu.

\"\"

\"\"

\"\"

Leslie fór því inn í húsið og byrjaði að taka myndir.

\"\"

\"\"

Húsið reyndist hins vegar ekki yfirgefið því í einu herberginu rakst Leslie á íbúa hússins: Lawrence.

Það var hann sem var yfirgefinn, ekki húsið.

\"\"

Lawrence.

Lawrence bjó þarna einn og hafði gert það lengi. Hann var blindur á öðru auga og við það að missa sjón á hinu. Eftir nokkrar heimsóknir til Lawrence, treysti hann Leslie fyrir því að um viku fyrr, hefði hann fengið einhvers konar áfall. Við áfallið hefði hann misst mátt í annarri hendi.

Það tók Leslie fjóra daga að sannfæra Lawrence um að fara til læknis. Ljóst var að heilsu hans fór hratt hrakandi.

En Leslie gerði meira. Ekki aðeins sá hún til þess að Lawrence fengi hjálp lækna, heldur smalaði hún saman hópi fólks sem tók til í húsinu og kom því í betra horf fyrir Lawrence. Á Instagramsíðuna sína skrifaði Leslie:

,,Þetta eru eflaust síðustu mánuðirnir sem ég á með þessum nýja vini mínum. En ég ætla mér þó að reyna að að gera mitt til að þeir verði sem bestir fyrir hann.”

Leslie sagði líka frá því að Lawrence gerði sér grein fyrir því í hvað stefndi. Hann sagði henni til að mynda hvernig hann sæi fyrir sér útförina sína og spurði Leslie hvort hún væri tilbúin til að mæta. ,,Já,” sagði Leslie, sem enn var hálfmeyr yfir þeirri staðreynd að eldra fólk gæti endað uppi jafn eitt og yfirgefið eins og Lawrence. Það var eins og heimurinn hefði hreinlega gleymt honum.

\"\"

Aldrei aftur einn.

Vikurnar liðu síðan og engar fréttir birtust á Instagramsíðu Leslie. Fór svo að fylgjendur hennar fóru að spyrjast fyrir um hvað væri að frétta: Er Lawrence enn á lífi? Hvernig líður honum? Er eitthvað nýtt?

Leslie var fljót að bregðast við með nýjum fréttum. Hún sagði þær bæði góðar og slæmar. Slæmu fréttirnar væru þær að Lawrence hefði fengið áfall aftur og heilsunni hefði því hrakað enn. Góðu fréttirnar væru hins vegar þær að nú væri hann fluttur á dvalarheimili þar sem um hann væri hugsað allan sólahringinn. Þar ætti hann nýja og góða vini og liði vel.

Sagan af Lawrence hafði greinilega komið við marga en sjálfur gerði hann sér enga grein fyrir því, hversu margir hefðu í raun verið að fylgjast með sögunni. Instagram er eitthvað sem hann þekkir ekkert, ekkert frekar en aðra samfélagsmiðla. Leslie fór samt á dvalarheimilið og sagði honum frá. Hún smellti líka nokkrum nýjum myndum og skrifaði á Instagram:

,,Við erum bæði svo þakklát fyrir hlýjar kveðjur frá ykkur og hugsanir.”

Sjálfur sagði Lawrence að dagurinn þar sem Leslie birtist allt í einu heima hjá honum, hefði verið sá besti sem hann hefði lifað. Lawrence finnst enn ótrúlegt að heyra að sagan hans hafi komið við marga og að víðs vegar um heiminn væri fólk að hugsa hlýlega til hans. Því hafði hann aldrei kynnst áður.

\"\"

 Scribol

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!