Hún giftist í svörtu – myndir

,,Svarti liturinn er klassískur. Hann lítur vel út á nánast öllum. Hann er djarfur, sexý og ögrandi” segir ástralski bloggarinn Sophie Cachia sem vakti athygli á dögunum þegar hún gifti sig í svörtum brúðarkjól. Eiginmaðurinn Jaryd, varð ekki hissa enda hefur hann margoft sagt við eiginkonu sína að henni fari svarti liturinn mjög vel. Að sögn Sophie var líka ekkert verið hefðbundið við brúðkaupið yfir höfuð því hún og Jaryd skipulögðu það bara eins og þeim langaði helst til og veislan endaði því sem þrælgott partý. Sjálf hefur hún aldrei séð sig fyrir sig í hvítum brúðarkjól og vildi alls ekki klæðast einhverju á þessum degi, sem aðrir væru að segja henni að vera í. Nei, hún valdi kjól sem hana langaði sjálfri til að klæðast á þessum merkisdegi.

Sophie segir að hefðin um hvíta brúðarkjólinn sé líka úrelt og eigi ekkert alltaf við. Til dæmis eiga hún Jaryd 18 mánaða gamlan son og því ólíklegt að einhver trúi því að hún hafi verið hrein mey við giftingu.  En hér eru nokkrar myndir af Sophie í kjólnum.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!