,,15 ástæður fyrir því að ég elska konuna mína"

Það segir sig sjálft að það að eiga maka, sem þjáist af þunglyndi, setur mark sitt á hjónabandið. Eykur álag og vanlíðan og kannski varnarleysi þeirra sem standa þeim veika hvað næst. Zetan rakst á fallega frásögn á imgur. Þar segir Molly Murphy frá því að einn daginn þegar hún kom heim, hafði maðurinn hennar, Tim Murphy, listað upp á spegil 15 ástæður fyrir því að hann elskaði hana. Hvers vegna? Jú, Molly er þunglynd og á þessum degi vissi Tim að hún átti \"\"sérstaklega erfitt. Hjónin búa í Los Angeles í Bandaríkjunum en voru nýkomin úr ferðarlagi til San Francisco.

Það var Molly sem birti myndina af lista eiginmannsins á imgur. Þar segir hún:

,,Þunglyndi læknast ekki með elskulegum orðum á spegli. Nei, þunglyndi kallar á aðstoð fagfólks, umhyggju, nærgætni og stundum lyf, bara svona rétt til þess að geta komist í gegnum daginn. Eflaust þjást fleiri af einhverjum andlegum veikindum en við vitum um. En í stað þess að pirrast þá út í það fólk, skiptir miklu að sýna þeim kærleika því það er þannig sem hægt er að benda þeim á að þeim MUNI fara að líða betur.”

Á listan skrifaði Tim:

  1. Hún er besti vinur minn
  2. Hún gefst aldrei upp
  3. Hún gefur mér svigrúm til að vinna að mínum verkefnum
  4. Hún fær mig til að hlæja daglega
  5. Hún er rosalega falleg
  6. Hún tekur mér eins og ég er
  7. Hún er besta manneskjan sem ég þekki
  8. Hún syngur frábærlega
  9. Hún hefur farið á strippstað með mér
  10. Þrátt fyrir erfiðleikana, er hún jákvæð
  11. Hún styður mig í mínum ákvörðunum
  12. Hún gerir sér ekki grein fyrir því, en með henni langar mig að gera fleira og meira en með nokkrum öðrum
  13. Hún stendur sig frábærlega í sínu starfi
  14. Hún grætur þegar hún sér lítil og sæt dýr
  15. Það hvernig hún hlær

---

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!