Hún er 96 ára og nú fyrst að komast í blöðin: geggjaðar myndir!

Þið ykkar sem elskið ,,Vintage” stílinn, verðið að skoða þessar myndir. Þær eru hreint út sagt geggjaðar! Reyndar er sagan á bakvið myndirnar líka ótrúlega skemmtileg. Þannig var að árið 2014, fór hús á sölu í Toronto í Kanada. Þetta væri svo sem ekki frásögufærandi, nema fyrir myndirnar sem teknar voru af innbúinu og slógu vægast sagt í gegn!

Eigandi hússins, er 96 ára gömul kona. Að utan, leit húsið ekkert öðruvísi út en flest önnur hús í hverfinu. Innbú hússins, var hins vegar eins og fjársjóður að komast í: Heimili sem virtist nánast ekkert hafa breyst í áratugi!

Húsgögnin eru flest frá árunum 1942 – 1965. Bleikur er uppáhaldsliturinn, en þó eru aðrir litir áberandi líka. Til dæmis fjólublár. Skoðum myndirnar...

Eins og sjá má, eru flest húsin eins í götunni.

\"\"

\"\"

Svona lítur síðan bakgarðurinn út.

\"\"

 Þegar komið er inn í forstofuna, má hins vegar sjá að húsið er allt annað en að vera líkt heimilum nágrannana! Hér er veggfóður og húsgögn frá 1950-1960.

\"\"

Stofa og borðstofa.

\"\"

 

Borðstofuhúsgögnin minna helst á barbídúkkuhúsgögn, en takið líka eftir smáhlutum eins og ljósakrónum, vegg- og borðskrauti.

 

 

\"\"

Hér er eldhúsið.

\"\"

Eldavélin er yfir 60 ára gömul og virkar enn!

\"\"

Borðkrókur inn af eldhúsi.

\"\"

Stórt og gott þvottahús.

\"\"

Baðherbergi.

\"\"

Stofa og bar í kjallara.

\"\"

\"\"

Enn og aftur: Takið eftir smáhlutunum. Sjáið til dæmis bláa lampan.

\"\"

Snyrtiborð og spegill á gangi efri hæðar.

\"\"

Bleikt herbergi.

\"\"

Bleikt baðherbergi (meira að segja setan er bleik!).

\"\"

Fjólublátt herbergi.

\"\"

Hvítt herbergi með fjólubláu teppi og turkeyslituðum húsgögnum.

\"\"

Um athyglina sagði gamla konan:

,,Orðin 96 ára og loksins verið að uppgötva mig!”

Gamall draumur hjá henni hafði alltaf verið sá að verða innanhúshönnuður. Sem ung kona, bauðst henni ekki þau tækifæri. Húsið hefur verið í eigu fjölskyldu hennar frá því árið 1942 og hafði hún lagt mikið uppúr því að viðhalda öllu mjög vel.

,,Ég hef samt alltaf lagt áherslu á sjálfstæði í stíl og því fylgt eftir mínum eigin hugmyndum.”

Nú veit Zetan ekki hvernig til tókst með söluna og væntanlega vilja svo sem fáir eiga heimili í akkúrat þessum stíl í dag. En það breytir því ekki að myndirnar eru flottar og fengu verðskuldaða athygli þegar þær birtust á netinu. Sannkallaður ,,vintage” stíll á þessu heimili, svo ekki sé meira sagt!

Scribol

---

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Atvinnulífið, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\" 
Zetan er í eigu 
Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!