Hún deyr innan 8 vikna: biður fólk á samfélagsmiðlum um hjálp

Hún er aðeins 24 ára gömul og fyrir nokkrum vikum síðan, leit hún ekki á sjálfan sig öðruvísi en hverja aðra jafnöldru í háskólanum í Cardiff í Bretlandi, þar sem hún var á lokaári í augnlækningum. En síðan kom sjokkið: Hún er með hvítblæði og á stutt eftir.

Sú sem um ræðir, heitir Vithiya Alphons. Læknar hafa sagt henni að ef hún finni ekki blóðfrumugjafa innan 8 vikna, muni hún deyja. Þegar þessi tilkynning kom, hafði Vithiya þó verið í lyfjameðferð í einn mánuð, sem allir töldu að væri að virka nokkuð vel.

,,Mér leið mjög illa, ældi sex til sjö sinnum á dag og fékk örugglega allar þær aukaverkanir sem hægt er að fá, en reyndi að vera jákvæð. Loks fór mér að líða betur, var búin að vera heima í þrjár vikur og hárið var farið að vaxa aftur. Ég var mjög bjartsýn.”

\"\"En því miður: Fréttirnar sem á eftir fylgdu voru ekki góðar. Vithiya segir samt að þegar læknarnir sögðu henni fréttirnar, hugsaði hún með sér: 

,,Guði sé lof, ég er þó enn á lífi!”

Eina vonin nú, er að hún finni stofnfrumugjafa, sem passar. Þótt eflaust séu einhverjir lesendur Zetunnar að velta því fyrir sér nú þegar hvort þeir gætu hjálpað, gæti það verið erfitt með okkar íslensku gen. Vithiya er nefnilega ættuð frá Sri Lanka og það er að gera henni erfiðara fyrir ef eitthvað er, að finna stofnfrumugjafa sem passar. Vithiya á 22 ára gamlan bróður sem hætti samstundis í vinnunni sinni til að aðstoða systur sína. Það er samt vitað að það eru aðeins 50% líkur á að hann gæti hentað henni sem frumugjafi.

Vithiya brá því á það ráð að leita til fólks á samfélagsmiðlum. Þar hefur hún biðlað til fólks um að dreifa beiðni sinni um hjálp. Við Independent sagði hún:

,,Þótt það muni svo sem á endanum ekki hjálpa mér, þá gæti eitthvað gerst þannig að mín saga endar með að hjálpa einhverjum öðrum.”

Þannig lítur Vithiya á tilfellið sitt, sem tækifæri til að vekja fólk til umhugsunar um, hversu mikilvægt það er að fá sem flesta til að skrá sig sem mögulega stofnfrumugjafa. Það geti hjálpað fólki í hennar stöðu. Vithiya biður fólk um að skrá sig sem gjafa á vefsíðunni Anthony Nolan. Það eru góðgerðarsamtök sem starfa við það að finna frumugjafa fyrir fólk með blóðkrabbamein. Nánar má lesa um samtökin með því að smella HÉR. Vithiya stofnaði einnig Facebooksíðu í síðustu viku, þar sem hún hvetur sem flesta til að skrá sig sem gjafa, sjá HÉR.

Á Íslandi er hægt að skrá sig sem stofnfrumugjafa, í gegnum Blóðbankan. Lesa nánar um þetta með því að smella HÉR. Þar segir meðal annars:

,,Þú getur skráð þig á stofnfrumugjafaskrá í Blóðbankanum ef þú ert blóðgjafi á aldrinum 18-40 ára. Þú getur verið á skránni til 55 ára aldurs en ert þá sjálfkrafa tekinn út. Taka verður blóðprufu til vefjaflokkunar, t. d. um leið og blóðgjöf fer fram. Vefjaflokkunin er skráð í stofnfrumugjafaskrána. Stofnfrumugjafaskráin er einskorðuð við blóðgjafa því þeir eru heilsuhraustir og vitað er að þeir eru tilbúnir að gefa í þágu sjúkra.\"

Sími Blóðbankans er 543-5500.

\"\"

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

SKRÁÐU NETFANGIÐ ÞITT HÉR!

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.