Hringir chandler í juliu roberts í dag?

Íslendingar voru ekki einir um að elska þáttaseríuna Vini. Það gerði nánast heimurinn í heild sinni. Redditnotandi benti á skemmtilegan vinkil í dag, sem Zetan ákvað að deila með ykkur.

Þannig var að í seríu 2, þætti númer 13, var gestaleikari þáttarins leikkonan Julia Roberts. Hún lék gamla bekkjarsystur Chandler, sem Matthew Perry lék. Chandler var auðvitað hugfangin af því, hversu falleg þessi gamla skólasystir hans var orðin.

\"\"

\"\"

Chandler ætlaði varla að trúa sinni eigin heppni, þegar Susie samþykkti að fara með honum út að borða.

\"\"

Þegar líða tók á kvöldið, magnaðist spennan og Chandler varð heppnari en nokkru sinni fyrr: Hann komst á séns með Susie!

\"\"

En það næsta sem sést síðan, er Chandler öskureiður, sármóðgaður og steinhissa á nærbuxunum einum fata á karlasalerninu.

Nærbuxurnar voru ekki hans eigin... heldur Susie.

\"\"

En Susie var bálreið líka:

,,Manstu skólaleikritið? Þegar þú tosaðir pilsið upp um mig fyrir framan allan salinn þannig að allir sáu nærbuxurnar mínar?\"

\"\"

Já, Susie hafði nefnilega engu gleymt og sagði því við Chandler hálfberrasaðan á klósetti veitingastaðarins:

,,Hvers vegna hringir þú ekki í mig eftir 20 ár og lætur mig vita, hvort þú verðir enn sár vegna þess sem ég gerði þér hér.\"

\"\"

Og það sem Redditnotandinn ónefndi benti einmitt á er að í dag eru 20 ár liðin frá þættinum.

Réttilega ætti Chandler því að hringja í Juliu Roberts (Susie) í dag.

Nema hann sé enn í uppnámi?

\"\"

Birt á Buzzfeed í gær, 28.janúar, en þá voru nákvæmlega 20 ár frá því að þátturinn var sýndur í Bandaríkjunum.

Eflaust stuttu síðar hér.

----

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!