Hræðilegt slys á leiðinni á fæðingardeildina

Nóttin sem hefði átt að verða að mikilli gleðistund, breyttist heldur betur í martröð fyrir fjögurra manna fjölskyldu í Colarado í Bandaríkjunum. Þetta var fljótlega eftir áramót, eða nánar tiltekið þann 13.janúar síðastliðinn. Jill Schmucker var gengin 9 mánuði með og átti því von á sér á hverri stundu. Þessa nótt, fann hún að hríðir byrjuðu og stutt væri í fæðingu. Hún vakti því manninn sinn Tony og sagði að nú væri komið að stóru stundinni.

Hjónin vöktu drengina sína tvo, hinn 6 ára gamla Ryder og 4 ára gamla Rollie. Allir á heimilinu klæddu sig í flýti og skunduðu út í bíl.

Stuttu eftir að lagt var af stað, gerðist þó eitthvað.

Tony varð bráðkvaddur við stýrið. Í frétt Newser er sagt að ekki sé vitað hver orsökin var, en svo virðist sem hann hafi fengið einhvers konar slag. Afleiðingarnar voru þær að bíllinn keyrði út af og valt.

GSM sími Jill flaug með öðru dóti út í buskan, en það fyrsta sem hún gerði var að athuga með drengina tvo í aftursætinu. Þeir virtust vera í lagi.

Sjálf var Jill föst í bílsætinu og Tony lá hreyfingarlaus við hlið hennar. Jill fann að hún gat sig hvergi hreyft og kom í ljós síðar, að hún bakbrotnaði. Sem betur fer, náði annar sonurinn GSM síma pabba síns og hringdi á neyðarlínuna. Öllum var hraðað á sjúkrahús, en þar lést Tony á meðan Jill fæddi þeirra þriðja barn. Tony var 37 ára þegar hann lést.

Jill og synir hennar hafa nýtt sér GoFund fjáröflunarsíðuna fyrir styrktarframlög. Þegar þetta er ritað, hefur söfnunin gengið vel en í frétt Newser kemur fram að Jill muni ná fullum bata.

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!