Heyrnarlaus á öðru og fékk snilldarhugmynd til að skýra það út! (myndir)

Zetan rakst á skemmtilegar myndir á vefsíðunni Boredpanda, en þar getur fólk sent inn ýmsar sögur og myndir. Þar segir frá ungri konu, sem er heyrnarlaus á öðru eyra. Hún ákvað að fá sér tattoo til að skýra það út.

Eins og sjá má á myndinni hér að neðan, er húðflúrið staðsett aftan við eyra, með tákni sem þýðir ,,ekkert hljóð.” Myndina birti stúlkan á Imgur, með eftirfarandi stöðufærslu:

,,Þar sem ég er heyrnarlaus á öðru eyra, datt mér í hug að vinaleg leið til að benda fólki á að tala ekki við mig frá vinstri.”

\"\"

Myndin vakti að vonum athygli og aðdáun og það skemmtilega er að stúlkan fékk meðal annars viðbrögð frá ungum manni sem hafði gert það sama.

Eins og sjá má á myndinni hans, er táknið aðeins öðruvísi en hugsunin sú sama.

Snilldarlausn hjá þeim báðum!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!