Hann missir ættingja í flugslysi og hún segir þetta.. ótrúlegt!

Í nýlegum þætti af The Bachelor greinir piparsveinn þáttarins frá því við stúlknahópinn að tveir nákomnir ættingjar hans hafi látist í flugslysi. Hann verður meyr og viðurkennir að hann sé vissulega aumur yfir þessu. Sé þó engu síður glaður að vera hjá stúlkunum þar sem hann er einmitt að leita að einhverri til að hafa við hlið sér á svona stundu. 

Ein stúlkan dregur hann afsíðis til að ræða við hann... 

Nú haldið þið að hún sé að fara votta honum samúð sína, bjóða honum öxl til að gráta á eða vin til þess að tala við. Það gerir hún hins vegar ekki heldur segir honum frá \"erfiðri\" lífsreynslu sinni. Hún er sum sé virkilega ósátt við líkama sinn og þá sér í lagi fótleggina.. já við sögðum FÓTLEGGINA!

Hún brotnar niður og segir honum að hún reyni að vera sterk þegar hún viti til þess að fólk tali illa um fótleggi hennar og þá sérstaklega ökklana. 

Ekki vitum við hvernig þessi frásögn tengist hræðilegu banaslysi í fjölskyldu hans eða hvernig hún ætti að hjálpa honum á þessari stundu.

Eitt er þó víst að þessi fær líklega ekki rós við næstu rósarafhendingu, eins og er hefð fyrir þegar piparsveinninn velur stúlkur sem halda áfram þátttöku í þættinum. 

 

Hægt er að sjá atvikið í myndbrotinu hér:

 

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!