Týndi símanum og týndi lífinu við leitina

Við erum mörg hver farin að nýta okkur tæknina til að finna týnda síma. Þessi öpp eru tær snilld: Find my iphone og áður en þú veist af, er síminn fundinn á ný. Meira að segja foreldrar barna dásama þessi öpp, því þegar yngstu símnotendurnir týna símunum, eru góð ráð dýr. Leitaröppin koma því vægast sagt að góðum notum.

En við erum nú líka frekar heppin hér á Íslandi. Að finna síman sinn með leitarappi flokkast undir eitthvað sem telst með öllu hættulaust. En þannig er það ekki alls staðar og því er það víða þannig að lögreglan hvetur ungt fólk og aðra, að fara varlega í að leita uppi týnda síma. Sérstaklega ef staðsetningin sem leitarappið sýnir er þeim ókunnugt og bendir til þess að síma hafi verið stolið.

\"\"Hér er eitt dæmi um leit sem fór illa og vefsíðan Scribol segir frá. Símaeigandinn var 18 ára og bjó í Ontario í Kanada. Hann hét Jeremy Cook og var að læra húsasmíði. Eins og oft gerist, uppgötvaði Jeremy einn daginn að hann hafði týnt símanum. Hann var nokkuð öruggur um að hafa gleymt honum í leigubíl sem hann hafði tekið nokkru áður. Þetta var 14.júní í fyrra.

En sem betur fer, gat Jeremy haft uppá símanum með appinu Find My iPhone. Þegar hann sá hvar síminn virtist staðsettur, fékk hann systur sína til að skutlast með sér þvert yfir bæinn til að hafa uppá símanum.

Á bílastæði fyrir utan verslunarkjarna, sýndi appið að síminn virtist vera í bifreið sem þar stóð. Þrír menn voru hjá bílnum og gekk Jeremy að þeim og bar upp erindið: ,,Eruð þið með síman minn?”

\"\"Augnabliki síðar var hann látinn.

Fjölskylda og vinir Jeremy ætluðu ekki að trúa því sem gerst hafði. Eitthvað sem hafði virst svo saklaust, endaði með ósköpum. Símaþjófarnir reyndust meðlimir í glæpaklíku sem víluðu ekkert fyrir sér. Að játa á sig símastuld var eitthvað sem þeim datt ekki í hug. Að draga upp byssu, slást og enda með að myrða Jeremy, er hins vegar lýsing á því sem gerðist næst.

,,Það hefði enginn getað séð það fyrir að týna lífi fyrir eitthvað eins smávægilegt og síma...” sagði lögreglan í kjölfarið og beindi þannig orðum sínum til fólks um að fara varlega.

Til að gera langa sögu stutta, fundust mennirnir þrír ekki allir. Einn þeirra fannst reyndar látinn nokkrum vikum síðar. Annar gaf sig fram við lögreglu og bíður dóms. Sá þriðji hefur aldrei fundist.

\"\"

\"\"

 Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!