Handteknir fyrir skítalykt á djamminu

Já, það er ekkert grín að anga af skítalykt svo ekki sé meira sagt, enda enduðu tveir háskólanemar í háskólanum í Georgíu í Bandaríkjunum í fangelsi, eftir að hafa spreyjað bargesti eina nóttina með einhvers konar ,,prump-spreyi.” Nemarnir eru tvítugir og áttu því ekki einu sinni að vera á umræddum bar, því í Bandaríkjunum er aldurstakmark 21 árs. Um klukkan 01.40 að nóttu aðfaranótt 9.apríl, fékk lögreglan símtal frá konu á barnum, sem sagði að tveir bargestanna væru að spreyja á aðra gesti eitthvað sprey með rosalega vondri lykt. Sjálf hefði hún fengið spreyið beint í augað og angaði af skítalykt.

Þegar lögreglan kom á staðinn, var barinn hins vegar hálftómur því gestir tóku að flykkjast út vegna skítalyktarinnar. Margir urðu þó vitni að atvikinu og gátu bent á sökudólgana með spreyið. Þeir voru handteknir en sögðust saklausir. Í vösunum þeirra fannst hins vegar sprey sem heitir ,,Liquid ASS” og voru piltarnir umsvifalaust fluttir í fangelsi í kjölfarið. Að sögn fréttaveitunnar Newser  er þó ekki alveg vitað hvernig málið fer fyrir drengjunum, því bargestir eru ekki allir á því að kæra þá. Ekki einu sinni konan sem fékk spreyið í augað og hringdi í lögregluna, sagðist ætla að standa í því.

Hér má sjá mynd af umræddu spreyi, en það er auglýst sem sprey til að hrekkja og því haldið fram að skítalyktin verði hreinlega óbærileg innan hálftíma.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!