Hafa þær eyðilagt andlitið með bótoxi? myndir

Sitt sýnist hverjum um fegrunaraðgerðir þeirra ríku og frægu og eitt af því sem gjarnan er tekið saman af fjölmiðlum, eru ,,fyrir og eftir” myndir af leikurum og leikkonum. Zetan rakst á samantekt yfir 10 leikkonur, sem vefsíðan hitthenews segir að hafi eyðilagt á sér andlitið með notkun á bótoxi. Zetan er þó ekki sammála öllu því sem þar kemur fram, en skoðum yfirlitið og förum yfir það sem þar er sagt. Þá rifjar Zetan einnig upp ummæli Jennifer Aniston, sem segist ekki vilja nota bótox né aðrar aðgerðir til að líta út fyrir að vera yngri en hún er. Jennifer er meðal fárra leikkvenna, sem hafa gagnrýnt fegrunaraðgerðir opinberlega, en þær þykja mjög algengar í heimi bæði karlkyns og kvenkyns leikara. Er því kennt um að útlitsdýrkun og pressan um hið fullkomna útlit, sé gengið svo langt að í dag sé rætt um hvort andlit séu ,,gervileg\" eða ,,eðlileg.\"

 

RENE ZELLWEGER

Hin ástkæra leikkona Rene Zellweger hefur verið dýrkuð og dáð síðan hún lék hina ógleymanlegu Bridget Jones. Þá þótti hún einmitt falleg fyrir það hversu eðlileg hún væri og dæmi um konu, sem margar aðrar konur gætu samsvarað sig við. Það olli því þó nokkru uppnámi þegar Rene kom fram á rauða dreglinum árið 2014, að því virtist alveg gjörbreytt. Vilja sumir meina að Rene hafi ráðist í eitthvað annað og meira en eingöngu bótox í andliti, en ljót ummæli um hana á netinu urðu svo áberandi um tíma að leikkonan sagði sig knúna til að stíga fram og svara fyrir sig. Hún sagði breytt útlit fyrst og fremst fyrir hana sjálfa, þetta væru breytingar sem hún teldi að gerði sig ánægðari en ella með sjálfan sig.

\"\"

 

ANGELICA JOLIE

Zetan getur ekki verið sammála þeim sem segja að Angelica Jolie hafi eyðilagt á sér andlitið með bótoxi. Leikkonan þykir ein fegursta kona í heimi og er það reyndar viðurkennt í þeirri grein sem vísað er í á vefsíðunni hitthenews.  Sumir hafa hins vegar af því áhyggjur að mögulega muni Angelica ekki eldast eins vel og hefði verið, ef hún hefði með öllu sleppt bótoxi. Við skulum þó vona að Angelica haldi bara áfram að þroskast og dafna eins fallega og hún hefur gert hingað til.

 \"\"

 

SHARON OSBOURNE

Þegar Osbourne fjölskyldan fór af stað með raunveruleika þættina um fjölskylduna árið 2002, var mikið rætt um að Sharon Osbourne hefði ekki aðeins notað bótox, heldur einnig farið í þó nokkrar lýtaraðgerðir. Margir töldu Sharon þó eina af þeim sem vel hefði tekist til hjá og voru þá að jafnaði dregnar fram myndir af henni frá því á sjöunda eða áttunda áratugnum. Hins vegar þykir Sharon mögulega hafa haldið áfram of lengi, því nú vilja sumir meina að bótox notkunin sé farin að gera hana gervilega í framan, til dæmis þegar hún brosir eða er að tjá sig með andlitinu.

\"\" 

 

MADONNA

Madonna virðist hafa gert sitt af hverju síðustu árin við andlitið á sér og því líklegt að þar spili fleira inní en aðeins bótox. Fyrir vikið þykir hún ekki samsvara sér í aldri en hún er fædd árið 1958 og verður því sextug eftir örfá ár. Þá þykir Madonna vera gervileg í andliti og er bótoxinu þar á meðal kennt um.

\"\" 

 

PRISCILLA PRESLEY

Priscilla Presley þótti meðal fegurstu kvenna í heimi þegar hún var eiginkona konungs rokksins, Elvis Presley. En síðan eru liðin mörg ár og því miður ekki hægt að segja að Priscilla sé að eldast vel, eftir áralanga notkun á bótoxi, auk annarra aðgerða sem hún hefur farið í. Priscilla sagði sjálf að árið 2003, hefði það skemmt mikið fyrir henni þegar læknar ráðlögðu henni að nota annað efni en bótox, sem ætti að vera enn betra fyrir andlit hennar. Það hefði hins vegar ekki reynst rétt og þótt Priscillu hafi tekist með aðgerðum að bæta svolítið úr því sem þá gerðist, er engan veginn hægt að segja að Priscilla sé í dag, lík þeirri konu sem eitt sinn var þekkt sem Frú Presley.

\"\" 

 

CAMERON DIAZ

Cameron Diaz segist ánægð með að hafa hætt að nota bótox. Hún gerði það þó um tíma og þótti andlit hennar verða stífara fyrir vikið og ekki eins glaðlegt og það átti sér að vera. Cameron segist hafa byrjað að nota bótox þegar hún sá að aldurinn var að færast aðeins yfir. Í dag segist hún hins vegar ánægð með þær hrukkur sem myndast hafa í andlitinu og ólíkt flestum öðrum leikkonum í Hollywood, hefur hún lýst því yfir að hún vilji hvorki nota bótox né aðrar aðgerðir til að líta yngri út eða öðruvísi.

\"\"

 

COURTNEY COX

Síðustu árin hhefur Courtney Cox, sem lék hina ógleymanlegu Monicu í þáttunum Friends, ekki verið sjón að sjá miðað við það sem áður var. Í samanburði við vinkonu sína Jennifer Aniston, lítur Courtney ekki vel út og er langt frá því að vera að eldast eins vel. Gula pressan sagði svo frá að þegar Jennifer Aniston gagnrýndi bótox og fegrunaraðgerðir opinberlega árið 2014, þá hefði vinkonu hennar Courtney sárnað það mjög. Þær hafa þó sæst síðan þetta var, en gagnrýni Aniston hefur þó ekki dregið úr notkun Courtney á bótoxi, sem nú er sögð eiga nokkuð erfitt með ýmsar andlitshreyfingar og er mjög stíf í andliti.

 \"\"

 

TERI HATCHER

Margir muna helst eftir Teri Hatcher úr þáttunum Desperate Housewives, en það má líka minna á hlutverkið hennar í kvikmyndinni New Adventures of Superman. Teri er sögð hafa byrjað að nota bótox í kjölfar mikillar pressu sem viðgengst í Hollywood. Þar eru paparazzi ljósmyndarar á eftir öllum þeim sem teljast þekktir og útlitið sífellt til umræðu í slúðurblöðum. Teri er sögð hafa fallið í þá gryfju að reyna að yngja sjálfan sig upp með bótoxi, en situr uppi með það í dag að vera sögð búin að eyðileggja þá fegurð sem fyrir var.

\"\" 

 

NICOLE KIDMAN

Að skoða myndir af Nicole Kidman fyrir um 15 árum, í samanburði við myndir í dag, er varla að unga, rauðhærða og freknótta konan úr Days of Thunder, sé þekkjanleg. Nicole þykir þó enn hin glæsilegasta og til að mynda má benda á hversu glæsileg hún var í kvikmyndinni Grace of Monaco. Nicole neitaði því lengi að hún hefði notað bótox, en árið 2014 viðurkenndi hún þó að hafa gert það. Hún sagði þó að í dag væri hún hætt að nota bótox.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

 \"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!