Gullfallegt hús, sem enginn vill þó eiga: hvers vegna?

Það er gullfallegt hús í Kaliforníu, sem síðustu árin hefur gengið kaupum og sölu. Enginn virðist þó vilja eiga heima þar lengi og fæstir sýna áhuga á að kaupa það. Þó er húsið auglýst á sérstaklega góðu verði miðað við stærð, hönnun eða staðsetningu, virðist enginn vilja kaupa það. Hefur verðið verið lækkað en það dugir ekki til. Samt býður húsnæðið upp á marga möguleika og hefur til dæmis verið nýtt undir rekstur að hluta, af nokkrum fyrri eigendum.

En hver er skýringin?

Byrjum á því að skoða nokkrar myndir

Húsið var byggt snemma á 19.öld.

Hjónin sem bjuggu fyrst í húsinu, hétu Young. Þau ráku útfarastofu en einn morguninn, varð herra Young bráðkvaddur við morgunverðarborðið. Í margar vikur, læsti ekkjan sig inni í hjónaherbergi og neitaði að koma út.....

\"\"

Áratugarnir liðu og húsið skipti um eigendur. Aftur og aftur. Árið 2010, keypti maður nokkur að nafni Warners húsið. Hann tók það allt í gegn að innan sem utan NEMA kjallaran....

 \"\"

\"\"

Warners hóf líka rekstur í húsinu, en það var ,,Bed & breakfast” gistiheimili.

 \"\"

\"\"

En Warners hefur líka gefist upp og vill selja húsið. Söluverð eru tæplega 900.000 dollarar sem þykja óvenju gott verð fyrir húsið. En ekkert gengur að selja....

Hvernig ætli standi á því?

\"\"Jú, kannski að skýringuna sé að finna í því sem er innifalið í húsinu:

7 svefnherbergi

6 baðherbergi

Nokkrar stofur

.....og t.d. beinagreind af 17 ára stúlku sem enn liggur í rústum útfarastofunnar í kjallaranum!

Já, draugagangurinn í húsinu er sagður svo mikill að allt frá því að Young fjölskyldan bjó þar, hefur varla verið vært. Ekkja Young, læsti sig því ekki inni í svefnherbergi af sorg, heldur af hræðslu!

Það sama hefur síðan gilt um alla íbúa hússins síðar. Warners fjölskyldan reyndi samt að semja um frið við draugana. Fyrstu nóttina, voru öll húsgögnin komin í húsið en ekki var búið að raða neinu upp á sinn stað. Dýnan í hjónarúminu var því stillt upp í stofu, þar sem Warners svaf með eiginkonu sinni þessa fyrstu nótt.

Saman ákváðu þau að reyna að friðmælast við draugana og láta þá vita, að ætlun þeirra væri ekki að reka þá út af heimilinu, heldur þvert á móti að lifa með þeim í sátt og samlyndi.

Draugarnir svöruðu með því að taka rafmagnið af!

Fasteignaauglýsinguna og fleiri myndir má sjá HÉR.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!