Gleymdi túrtappanum í 9 daga: endaði á gjörgæslu

Ung kona var hætt komin á sjúkrahúsi í Bretlandi á dögunum, vegna túrtappa sem hún hafði verið með í alls 9 daga. Unga konan er tvítug og heitir Emily Pankhurst. Hún fékk lífshættulega sýkingu og var lögð inn á gjörgæslu.

\"\"Emily var að læra undir lokapróf og segist hreinlega hafa gleymt því að hún hefði verið með túrtappa. Henni var samt farið að vera bumbult í maga og hélt í fyrstu að það væri bara stressi að kenna.

Þegar Emily mundi loksins eftir túrtappanum, var hann orðinn svartur á litinn. Nokkrum klukkustundum eftir að hún tók hann úr, fór hana að svima og virtist eins og drukkin þegar hún talaði. Mömmu hennar varð ekki um sel og hringdi á sjúkrabíl. Að sögn Dailymail, var Emily afar hætt komin þegar hún kom á sjúkrahúsið og mátti litlu muna að ekki færi verr.

Emily segist lítið muna eftir síðustu mínútunum áður en hún fór á sjúkrahúsið, en man það þó helst að henni var mjög illt í maganum. Það er eitt af einkennum sýkingarinnar ,,Toxic schock syndrome (TSS),” en það er bakteríusýking sem helst verður hættuleg við notkun á túrtöppum.

Almennt er mælt með því að skipta um túrtappa á þriggja klukkustunda fresti eða fylgja eftir þeim leiðbeiningum sem með þeim fylgja. Einkenni sýkingarinnar TSS geta verið: hár hiti, ógleði, niðurgangur, útbrot, verkir í vöðva, rauð augu, höfuðverkur, svimi, yfirlið og fleira.

---

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.