Game of thrones var alveg ömurlegt í byrjun...

Zetunni brá heldur betur í brún þegar hún rakst á grein á Huffingtonpost, þar sem sagði að Game of Thrones þættinri hefðu hreinlega verið skelfilega lélegir í upphafi. En á þessu er sem betur fer skýring!

Þannig segja handritahöfundar og framleiðendurnir John August og Craig Mazin að það hafi tekið þá fjögur ár að ná fyrstu ,,pilot” þáttunum góðum. Þetta hafi því tekið tíman sinn og það jafnvel þannig að sum tímabil voru hreinlega sársaukafull, svo erfitt var að ná þessu rétt.

John og Craig segja að þeir hafi farið fram og til baka og fram og til baka í bæði skrifum og fyrstu tökum. Alltaf var útkoman þannig að það var eitthvað sem hreinlega var ekki að ganga upp.

En síðan loksins small bara einhvern veginn saman!

Í fyrstu prufuþáttunum, voru reyndar aðrir leikarar í sumum hlutverkum. Sem dæmi má nefna að leikkonurnar sem þá léku Daanerys Targaryen og Catelyn Stark, voru allt aðrar leikkonur en þær sem síðar tóku við hlutverkunum. Leikkonan sem átti fyrst að leika Catelyn Stark, heitir Jennifer Ehle. Hún hætti hins vegar við og Michelle Fairley tók við.

\"\"

\"\"

En breytingarnar áttu ekki aðeins við um leikaravalið. Upphafslag þáttanna, breyttist til dæmis á síðustu stundu, því aðeins 10 vikum fyrir frumsýningu, var nýr lagahöfundur ráðinn.

Næsta sería af Game of Thrones verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 24.apríl næstkomandi. Zetan gerir nú fastlega ráð fyrir að Stöð 2 frumsýni þættina strax í kjölfarið.

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!