Fyrirburar haldast í hendur - myndband sem allir verða að sjá!

Kristian Ian og Kristiana Micaela fæddust tæplega kíló að þyngd og  11 vikum fyrir tíman. Það var þann 4.janúar síðastliðinn í Melbourne í Ástralíu. Hér er síðan myndband sem ALLIR verða hreinlega að horfa á. Foreldrar tvíburanna birtu það á Facebook og báðu fólk hreinlega um að DEILA ÞVÍ út um allt: Svo merkileg sjón er það!

Og hvað er svona ótrúlegt?

Jú, þessi litlu kríli liggja í fanginu á föður sínum og haldast í hendur. Þegar myndbandið var tekið upp, voru Kristian og Kristiana tæplega viku gömul.

Foreldrarnir, Glen og Anthea Jackson-Rushford hafa líka verið dugleg að birta myndir af tvíburunum á Facebook. Þar má sjá að litu krílin falast greinilega eftir því að finna snertingu frá hvort öðru og virðast því haldast í hendur. Fleiri myndir má sjá á Facebooksíðu hjónanna, sjá HÉR.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!