Fræga fólkið: 22 alkóhólistar sem þú þekkir

Sá á kvölina sem á völina segir gamla máltækið og auðvitað vitum við það öll, að það er enginn sem fer í gegnum lífið án þess að glíma við eitthvað. Þessa dagana, vinnur Hringbraut einmitt að sjónvarpsþætti í samstarfi við SÁÁ en hann verður í umsjón Páls Magnússonar. Zetan ákvað hins vegar að opna umræðuna, með því að taka saman lista yfir 22 þekkta einstaklinga, sem allir hafa farið í gegnum erfiða tíma vegna áfengisdrykkju. Allt er þetta frægt fólk, sem fjölmiðlar hafa fylgst vel með og því hefur þeirra vandi oftar en ekki endað á síðum dagblaða eða annarra fréttamiðla. Sem betur fer, hafa mörg þeirra sem hér eru nefnd, náð tökum á drykkjunni, sem verður auðvitað að teljast stærsti sigurinn. 

1. Mel Gibson

Mel Gibson er ekki bara leikari, heldur handritahöfundur og framleiðandi líka. Áfengi hefur þó sett sitt mark á hans feril og stundum komið honum í vandræði. Árið 2006 var Gibson handtekinn fyrir ölvun við akstur. Í framhaldinu tók hann sig á og viðurkenndi að áfengisneysla hans væri að hafa áhrif á bæði starf og einkalíf.

\"\" 

2. Lindsay Lohan

Lindsay skaust upp á stjörnuhimininn mjög ung og það er varla hægt að halda tölu um, hversu oft hún hefur farið í meðferðir. Áfengisneysla Lindsay hefur eyðilagt mikið fyrir henni í starfi og óljóst hvort hún nái sér á strik á ný. En ekki er öll von úti enn.

\"\"

3. Jamie Lee Curtis

Jamie Lee’s misnotaði bæði verkjalyf og áfengi. Hún hefur sagt, að það að hætta að drekka, hafi verið hennar stærsti sigur í lífinu. Eftir að Jamie hætti að drekka, hefur hún talað mikið fyrir því að hver og einn eigi bara að sætta sig við sig eins og hann er, enda var hún sjálf á góðri leið með að eltast við lýtaraðgerðir og fleira, til að ná hinu ,,fullkomna” útliti. Það var einmitt á þeim tíma, sem hún fór að misnota áfengi og verkjalyf.

\"\"

4. Johnny Depp

Johnny Depp fór í gegnum erfiðan drykkjutíma, sem hafði áhrif á bæði starf og einkalíf. Eflaust hefur sá tími þó eitthvað hjálpað honum í hlutverki Jack Sparrow í Pirates of the Caribbean, sem var í rauninni dæmigerð fyllibytta. Depp er einn þeirra sem náði sér á strik, án þess að skemma alvarlega fyrir sér í starfi.

\"\"

5. Anthony Hopkins

Antony Hopkins segir að augnablikið þar sem hann áttaði sig á því að nú þyrfti hann að gera eitthvað, var þegar hann vaknaði upp í öðru fylki, án þess að vita hvernig eða hvenær hann komst þangað. Anthony hefur ekki drukkið síðan árið 1975 og stundar reglulega AA fundi.

 \"\"

6. Elton John.

Elton bæði drakk í óhófi og misnotaði kókaín. Umboðsmaðurinn hans var sá sem kynnti honum fyrir kókaíni á sínum tíma en allt fór þetta úr böndunum og ekki nóg með neysluna hjá honum, heldur glímdi hann einnig við átröskun. Elton segir að það hafi fyrst og fremst verið vinur sinn, Ryan White, sem hjálpaði sér við að rétta úr kútnum. Hann hefur nú verið edrú í rúmlega 20 ár.

\"\"

7. Eminem

Söngvari Eminem fékk reyndar hjálp frá Elton John, þegar allt var farið úr böndunum hjá honum. Áfengisneyslan hans var ekkert leyndarmál og fór ekki framhjá mörgum á sínum tíma og árið 2005 var hann nær dauða en lífi, eftir mikla drykkju og inntöku eiturlyfja. Söngvarinn hefur sagt að eitt af því sem hvatti hann til að hætta að drekka, var dóttir hans Hailie.

\"\"

8. Steven Tyler

Söngvari Aerosmith hefur ekki verið feiminn við að segja að hann hafi verið bæði fullur og lyfjaður í mörg ár, þegar Aerosmith velgengnin stóð sem hæst. Steven fór hins vegar í meðferð árið 1986 og var edrú í um 20 ár. Þá féll hann, en fór aftur í meðferð árið 2009 og hefur verið edrú síðan.

\"\"

9. Robert Downey, Jr.

Það leit ekki vel út fyrir Robert Downey JR um tíma og menn voru farnir að forðast að ráða hann í vinnu, vegna drykkju og neyslu. Robert segir að eitt kvöldið hafi hann verið svo fullur að hann rataði ekki heim. Morguninn eftir vaknaði hann við hlið barns nágranna síns. Hann hafði þá farið þangað inn og sofnað hjá barninu í barnarúminu. Foreldrum barnsins var svo brugðið um morguninn að þau hringdu á neyðarlínuna. En sem betur fer, náði Robert að hætta að drekka, tók aftur saman við eiginkonuna sína (hjónabandið var eitt af því sem var farið í vaskinn) og hefur aldrei gengið betur í starfi en síðustu árin.

\"\"

10. Billie Holiday

Það má líka rifja upp einstaklinga sem nú eru fallnir frá og þar tökum við sem dæmi Billie Holiday. Hún var aðeins 44 ára þegar hún lést. Þessi stórkostlega söngkona, átti ekki sjö dagana sælda í æsku, en móðir hennar var vændiskona. Læknar sögðu margoft við Billie að ef hún myndi ekki hætta að drekka, þá myndi hún deyja. Og því miður: Þannig fór það.

\"\"

11. Betty Ford

Forsetafrú Bandaríkjanna, Betty Ford, hefur haft mikil áhrif til góðs við að hjálpa þeim sem eiga við áfengisvanda að stríða. Árið 1970 sagði hún frá því að hún væri alkhólisti. Hún sagði líka frá því að faðir hennar og bróðir hennar glímdu við það sama. Á þessum tíma, var umræðan um alkhólisma mjög takmörkuð og mörgum brá því í brún, hversu opinská Betty var um áfengisvandan. Betty misnotaði bæði áfengi og verkjalyf. Hún hætti að drekka árið 1978, eftir að hafa verið lögð inn á spítala í meðferð. Árið 1982, opnaði meðferðarheimili í Kaliforníu í hennar nafni.

\"\"

12. David Hasselhoff

David Hasselhoff fór í meðferð árið 2002 en þá hafði það verið opinbert leyndarmál í um áratug, að David ætti við drykkjuvanda að stríða. Eftir meðferðina 2002, féll David fljótlega en fór aftur í meðferð. Það kom þó ekki til af góðu, því það var í framhaldi af því að vera lagður inn á bráðadeild með sjúkrabíl. Aftur náði David tökunum í nokkur ár en féll árið 2007. Þá tók dóttir hans upp myndband og sýndi honum, þegar rann af honum. David sá sjálfan sig þá haugafullan, sitjandi á gólfinu heima hjá sér að borða hamborgara. Dóttir hans vildi að hann sæi sjálfan sig, eins og fjölskyldan sá hann þegar hann var fullur. Þetta hafði áhrif og David hélt áfram að reyna. Hann fór í meðferð árið 2009 og aftur árið 2010. Vonandi að honum sé að ganga vel núna.

\"\"

13. Robin Williams

Hinn ástsæli og síbrosandi Robin Williams átti greinilega í mun meiri vandræðum en heimurinn áttaði sig á. Ekki aðeins átti hann í erfiðleikum með áfengi, heldur einnig þunglyndi. Baráttan hans við neysluna, sem einnig fól í sér misnotkun á kókaíni, stóð yfir í um 30 ár. Eins og frægt er, endaði Robin Williams með að taka sitt eigið líf, síðsumars árið 2014.

 \"\"

14. Stephen King

Stephen King er eitt af stærstu nöfnunum í bókaheiminum en hann fór í meðferð árið 1987 og hefur verið edrú síðan. Hann segist ekki stoltur af þeim tíma þegar hann drakk, en er opinskár í umræðu um áfengisvandan sinn og segist feginn því að hafa náð að hætta að drekka.

 \"\"

15. Ewan McGregor

Ewan McGregor segist hafa drukkið mikið í vinnunni, en þó þannig að enginn samstarfsmaður eða leikstjóri reyndi að stoppa hann. Hann hefur þó líst drykkjutímabilinu sínu þannig að það sem einu sinni var bara fjör og skemmtilegt, hætti að vera gaman og flöskunni fylgdi bara vanlíðan og volæði. Ewan segist hafa skammast sín mikið fyrir að ráða ekki við áfengisdrykkjuna, en er stoltur af því í dag að hafa hætt og segir bæði starf og líðan hafa batnað mikið í kjölfarið. Hann segir þó, að hann hafi ekki áttað sig á því að hann þyrfti að hætta að drekka, fyrr en hann var búinn að gera sig að svo miklu fífli að hann skammast sín enn fyrir.

\"\" 

16. Ben Affleck

Ben Affleck fór í meðferð árið 2001. Hann segir að áfengisneyslan hafi ekkert endilega haft mikil áhrif á starfsferilinn, en í einkalífinu klúðraði hann mörgu. Mörgum brá þó í brún, þegar Ben sást með glas í hönd á kvikmyndahátíðinni Sundance Film árið 2011. Það fall stóð þó stutt yfir og Ben hætti að drekka á ný.

 \"\"

17. Michael J. Fox

Það er mikil fyrirmynd í Michael J. Fox, sem bæði hefur náð að sigrast á áfengisneyslunni og að láta sjúkdóm sinn ekki standa í vegi fyrir því að reyna að láta sína drauma rætast. Fox er með parkisonsveikina, en áður en hann greindist með parkisons, var hann búinn að missa tökin á drykkju. Eftir að sjúkdómsgreiningin lá fyrir, hætti hann að drekka og ákvað að láta sjúkdóma og fíkn ekki skemma fyrir sér í lífi og leik.

 \"\"

18. Diana Ross

Diana Ross fór í meðferð árið 2002 og hefur verið edrú síðan. Diana er sögð ein ríkasta stjarna nútímans og kemst þar nálægt efnum Opruh Winfrey. Diana var þekktust á þeim tíma sem hún söng í hljómsveitinni The Supremes og eflaust áttar sig enginn á því, hvenær nákvæmlega hennar drykkjuvandi fór úr böndunum. Aðalmálið er þó það, að Diana hefur verið edrú frá árinu 2002.

\"\"

19. Daniel Radcliffe

Daniel Radcliffe var einungis 11 ára, þegar hann varð heimsþekktur fyrir hlutverkið sitt í Harry Potter myndunum. Þegar hann var unglingur, greindist hann með taugasjúkdóm, sem getur til dæmis haft áhrif á hreyfingar eins og að vera í vandræðum með að binda reimar á skóm og fleira. Daniel segir að eftir að þessi sjúkdómsgreining lá fyrir, fór hann að misnota áfengi. Sögusagnir gengu um á sínum tíma, þegar Harry Potter myndirnar voru í framleiðslu, að stundum hefði þurft að stoppa tökur því Daniel var engan veginn í stakk búinn til að leika sín hlutverk. Árið 2010, áttaði Daniel sig hins vegar á því að hann var algjörlega búinn að missa tökin og ákvað að hætta að drekka. Hann hefur fallið í einhver skipti en vonandi að honum muni bara farnast vel.

\"\"

20. Kristin Davis

Kristin Davis lék Charlotte í Sex and the City þáttunum, en fáir vita að áður en þeir þættir urðu til, átti Kristin við mjög alvarlegan drykkjavanda að stríða. Sjálf hefur hún sagt að innst inni var hún farin að trúa því að hún næði ekki að verða eldri en þrítug. Kristin segir að sinn áfengisvandi hafi verið orðinn sýnilegur strax þegar hún var unglingur, en hún byrjaði snemma að drekka. Sem betur fer, hætti Kristin að drekka þegar hún var 22 ára og hefur verið edrú síðan.

 \"\"

21. Alec Baldwin

Alec Baldwin segir að á tímabilinu tvítugt til þrítugt, hafi hann meira og minna verið fullur og í neyslu. Í eitt skiptið, var hann að keyra og var með Chardonnay í plastglasi við stýrið. Allt í einu, rann upp fyrir honum að þetta væri í hæsta lagi óeðlilegt, hann var drekkandi allar nætur og fór oftast ekki að sofa fyrr en um hádegið daginn eftir. Baldwin fór í meðferð og hefur verið virkur AA félagi frá því að hann var 27 ára.

 \"\"

22. Melanie Griffith

Melanie Griffith segist hafa barist við áfengi og fíkniefni frá því að hún var 18 ára og í um 30 ár. Hún misnotaði bæði áfengi og kókaín. Á þessu þrjátíu ára tímabili, fór hún að minnsta kosti þrisvar sinnum í meðferð. Melanie hefur sagt að það hafi verið fyrrum eiginmaður hennar, Anontio Banderas, sem hjálpaði henni hvað mest að reyna að hætta að drekka, en þau eru þó skilin í dag.

 \"\"

Hd.Happylifestylejournal

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!