Fjölskyldan sem sló í gegn á facebook (ha, ha....dásamleg!)

Það er fjölskylda í Kanada sem hefur heldur betur slegið í gegn á Facebook. Og ekki að undra! Hjónin heita Corrie-Lynn White og Dan Gibson. Fyrir bara rúmu ári síðan, áttu þau eitt barn. Í dag eiga þau fjögur!

Já, Dan hélt fyrst að Corrie-Lynn væri að grínast, þegar hún sagði honum að hún gengi með þríbura. Gat það verið? Dóttir þeirra var bara rúmlega eins árs og þar sem hjónin fóru ekki í tæknifrjóvgun, hafði ekkert annað staðið til en að eignast barn ,,númer tvö!\"

Þríburarnir Olivia, Jackson og Levy fæddust fyrir um 8 mánuðum síðan. Dan og Corrie-Lynn hafa verið dugleg að birta myndir, myndbönd og ýmiss góð ráð á Facebooksíðu sem þau kalla ,,The Baby Gang.”

Áður en lengra er haldið, er ágætt að horfa á þetta snilldarmyndband. Þar sést Corrie-Lynn vera að klæða börnin eftir bað.

Ha, ha, ha.... vægast sagt dásamlegt!

Vefsíðan Buzzfeed spurði Dan, hvernig það væri eiginlega að reka heimili með 6 manna fjölskyldu, þar sem börnin fjögur væru svona ung.

,,Það er frábær upplifun, reyndar alveg ótrúleg.”

Dan viðurkennir að auðvitað felst í þessu mikil vinna, enda ekki við öðru að búast. Hann hefur þó, ekkert síður en Corrie-Lynn, verið duglegur við að deila góðum ráðum á Facebook, til að mynda hollum og góðum uppskriftum. Við látum nokkrar myndir úr daglegu lífi fjölskyldunnar fylgja með, en þeir sem vilja fylgjast með þeim á Facebook, smellið HÉR.

 \"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!