Fjölskyldan sem hætti öllu og fór að ferðast.... (myndir)

Fjölskyldufaðirinn Tim Meeks lýsir ,,fyrra” lífi fjölskyldunnar þannig að þau hafi verið eins og föst í viðjum rútínu og reglu, þar sem lífið snerist um að vinna sem mest til að borga reikninga og húsnæðislán og á meðan fóru börnin í skólan. En þar með var þetta eiginlega upptalið.  Fyrir tveimur árum síðan tóku Tim og eiginkonan hans, Kerry, hins vegar róttæka ákvörðun:

Þau ákváðu að hætta ÖLLU!

Já, eitt kvöldið stakk Tim upp á því við Kerry að þau myndu hreinlega hætta öllu: selja húsið, hætta með stelpurnar í skóla, hætta að vinna og fara bara í frí! Búa til sitt eigið ævintýri.

Hugmyndin hljómaði í fyrstu fáránleg, en þegar þau höfðu farið í gegnum það hvernig þau gætu menntað stúlkurnar sínar, hætti hugmyndin að vera óraunhæf. Stúlkurnar þeirra eru Amy, 12 ára og Ella, 10 ára.

Hjónin lýsa hugmyndastiginu þannig að smátt og smátt, fór hún að festa sig í huganum og spenningur að magnast í maganum. Væri þetta hægt? Hvað myndu dæturnar segja? Hvaða áhrif hefði þetta á þær?

En þær urðu spenntar líka og ævintýrið varð að veruleika. Þau seldu heimilið sitt til 13 ára, sögðu upp í vinnunni og undirbjuggu sig fyrir kennslu dætranna. Markmiðið var: Að lifa í núinu, njóta lífsins og samverunnar!

Fjölskyldan er bresk og tóku ákvörðun um það strax að þau þyrftu ekki að ferðast um heiminn, til að upplifa ævintýri. Bretland væri stórt og fallegt land sem hefði upp á margt að bjóða. Tim segir í grein á The Guardian að auðvitað hafi kvíði fylgt upphafinu. Stúlkurnar voru til dæmis hræddar við að kveðja alla vini sína og margar ,,hvað ef” spurningar vöknuðu. Áður en haldið var af stað, tóku þau því eina ákvörðun til viðbótar:

Ef sú staða kemur upp að einhver í fjölskyldunni líður ekki vel að búa á ,,ferðinni,” þá myndu þau snúa heim aftur og byggja upp ,,eðlilegt” líf á ný.

Tvö ár eru liðin og sú stund hefur ekki komið upp enn.

Við látum nokkrar fjölskyldumyndir fylgja með en þess má geta að yfirskrift greinarinnar í The Guardian er ,,Þetta er besta fjölskylduákvörðun sem við höfum tekið.\" Segir kannski allt sem segja þarf?

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!