Fjölskylda liam hemsworth ánægð með ráðhaginn

Það hefur heldur betur verið mikið að gera hjá turtildúfunum Miley Cyrus og Liam Hemsworth síðustu daga. Miley flutti inn til Liam og nú eru þau trúlofuð: AFTUR! Stjörnusíðan E-online, segir fjölskyldu Liam mjög ánægða með ráðhaginn:

 ,,Liam hætti aldrei að vera hrifinn af Miley. Þegar þau trúlofuðust síðast, var tímasetningin fyrir þau bara ekki rétt og margt spilaði þar inn í. Bæði þurftu þau líka að þroskast og finna betur út hvað þau vildu sjálf,”

hefur E-online eftir heimildarmanni. Þar segir að fjölskylda Liam styðji vel við bakið á parinu og þeirri ákvörðun að trúlofast á ný.

,,Þau eru ástfangin og þetta er öðruvísi hjá þeim í þetta sinn.”

Miley og Liam settu upp sömu hringa og þau gerðu árið 2012. Hringurinn sem Miley ber, er sérhannaður af þeim báðum frá þeim tíma. Að sögn E-online, hefur hann því tilfinningalegt gildi fyrir parið. Hér má sjá myndir frá flutningum Miley til Liam í vikunni, en þá mætti hún með búslóðina í Uhaul sendibíl og voru ljósmyndarar og vegfarendur ekki lengi að taka við sér og birta myndir á netinu.

\"\"

 

\"\"

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis! 

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!