Ferðuðust um heiminn allt barneignarfríið (myndir)

Zetan rakst á frábæra frásögn ungra breska foreldra, sem nýttu barneignarfríið heldur betur til hins ítrasta. Já, þau ferðuðust um heiminn! Hjóinin, sem heita Edwards og Bayes, seldu bílinn sinn, settu húsið sitt í leigu og þegar dóttir þeirra var 3 mánaða, stigu þau upp í flugvél og.... fóru af stað!

Hjónin segjast hafa undirbúið ferðina vel og voru búin að tryggja sér ódýra flugmiða með góðum fyrirvara. Í ferðinni, sem stóð yfir í 10 mánuði, sóttu þau heim staði eins og Írland, Singapore, Ástralíu, Indónesíu, Malasíu, Víetnam, Taiwan og Hong Kong. Allan tíman var litla dóttirin, Esmé, á brjósti en foreldrarnir segja að það að ferðast með lítið barn, sé ekki erfitt. Þau nutu tímans til hins ítrasta og í grein Herald í Nýja Sjálandi, er haft eftir þeim að aðalmálið sé að ferðast létt. Þannig að: Ekki pakka miklu, bókið og skipuleggið með fyrirvara, verið útsjónarsöm og leigið húsið ykkar á meðan og farið síðan bara af stað!

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!