Fékk 700.000 jólakort og 16.000 jólagjafir

Það er ekki annað hægt en að fá sting í hjartað þegar maður heyrir af Sa’fyre litlu Terry, sem er aðeins 8 ára gömul en samt búin að missa svo mikið. Þannig missti hún föður sinn og þrjú yngri systkini í miklum bruna árið 2013. Í brunanum brenndist Sa’fyre sjálf mjög illa og er 75% líkama hennar skaddaður eftir eldsvoðan.

En Bandaríkjamenn eru ekki búnir að gleyma litlu stúlkunni, sem auðvitað snerti hjörtu margra þegar hún komst í fréttirnar fyrst eftir brunan. Þannig segir ABS frá því að fyrir síðustu jól, fékk Sa’fyre hvorki fleiri né færri en 700.000 jólakort! Kortin voru frá fólki víðs vegar um heiminn en skömmu fyrir jól, hafði Sa’fyre sagt í viðtali að það sem hana langaði helst í um jólin, væru jólakort.

Og ekki hægt að segja annað en að sú ósk hafi ræst og meira til! Þá voru einnig margir sem sendu Sa’fyre gjafir og sagði pósthúsið á svæðinu að þær hefðu verið rúmlega 16 þúsund talsins, gjafirnar sem hefðu verið sendar heim til Sa’fyre, vikurnar fyrir jólin. Sa’fyre býr í New York fylki. Hér má sjá mynd af Sa’fyre með systkinum sínum fyrir brunan, en síðan nokkrar nýjar myndir frá því fyrir síðustu jól.

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

\"\"

Uppfært 15.janúar kl.08:59:

Á Facebooksíðu Zetunnar og Spyr.is, hafa nokkrir Íslendingar sagt frá því að þeir hafi sent Sa’fyre kort og viti um fleiri. Gaman að heyra að Íslendingar eru meðal þeirra sem gleðja og styðja þessa ungu og duglegu stúlku!

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar allar helgar. Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!