Fæddist án kjálka en það sem læknavísindin geta gert.... (myndir)

Fyrir sjö árum síðan, fæddist Lexi Melton, heilsuhraust að öllu leyti nema fyrir það að hana vantaði neðri kjálkan. Þetta var þó vitað áður en Lexi fæddist, því í sónar á 27 viku, höfðu læknar gert sér grein fyrir því að eitthvað vantaði og rannsökuðu það því nánar. Móðirin var undir ströngu eftirliti fram að fæðingu, en Lexi fæddist sex vikum fyrir tíman.

Í fæðingu var aðalmálið að grípa til aðgerða um leið og Lexi fæddist, til að tryggja að hún gæti andað. Slanga var því þrædd um nef hennar, á meðan verið var að átta sig á því hvernig væri síðan best að meðhöndla barnið.

En nú eru liðin 7 ár. Lexi hefur farið í ótal aðgerðir á þessum tíma, en foreldrar hennar hafa þó lagt sig í líma við að hún gæti alist upp á sem eðlilegastan hátt fyrir barn á hennar aldri. Nú hefur fjölskyldan hennar og læknar, ákveðið að segja sögu hennar í fyrsta sinn.

Baráttan hefur verið löng og ströng, því strax eftir fæðingu þurfti Lexi að fara í aðgerð. Það sem læknar stóðu frammi fyrir var að aðgerðir sem vanalega er farið í ef fólk getur ekki andað eðlilega í gegnum munn, þurfa á kjálka að halda. Því var ekki fyrir komið í tilfelli Lexi. Alls hefur hún farið í 11 aðgerðir á sinni stuttu ævi.

\"\"

En svo ótrúlega mögnuð eru læknavísindin orðin í dag að nú er búið að rækta neðri kjálka á Lexi. Hann er öðruvísi en hjá öðru fólki að því leytinu til að læknarnir tóku mót af efri kjálka Lexi og bjuggu til nokkurs konar spegilmynd. Þetta hljómar kannski auðveldlega en með tilliti til öndunar og næringar, var það langt frá því að vera svo.

En útkoman er frábær!

\"\"

Fyrir fjölskylduna hefur þetta þó verið erfitt. Eldri bróðir Lexi er einu og hálfu ári eldri en Lexi og áður en hún fæddist, höfðu foreldrarnir bæði unnið aukavinnu til að ná endum saman. Eftir að Lexi fæddist, jókst kostnaðurinn til muna. Foreldrar Lexi segjast samt hafa byggt upp besta stoðkerfið í heimi: Aðstoð frá vinum og vandamönnum!

Allir lögðust á eitt, hvort sem var hjúkrunarfræðingar sem komu heim, fjölskyldur foreldra eða vaktaskiptin hjá foreldrunum sjálfum. Stundum gerðu þau þetta þannig að á meðan annað þeirra svaf, sá hitt um börnin og fór síðan að vinna og öfugt. Um þetta segir móðir Lexi:

,,Það þýðir ekkert að óska sér hlutirnir væru einhvern veginn öðruvísi því af svona reynslu, lærir maður fyrst og fremst að meta og þakka fyrir það sem maður á og hefur.”

CBS

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!

Viltu vinna þér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKORT?

Spyr.is er í samstarfi við Tölvísi um kannanir sem fólk getur tekið þátt í og fengið greitt fyrir. Með skráningu í viðhorfshóp Tölvísi er möguleiki á að vinna sér inn 200 þúsund króna inneign hjá iKort en dregið verður úr nýjum meðlimum  í lok mars. Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint sem hefur höfuðstöðvar í Stokkhólmi. Cint hefur umsjón með yfir 1.500 viðhorfahópum með alls 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Þátttakendur fá greitt fyrir að svara könnunum. Skráðu netfangið þitt með því að smella HÉR.