Faðir fangelsaður fyrir að taka síman af dóttur sinni

Tja, það er óhætt að segja að sumar erlendar fréttir vekja furðu Zetunnar. Þannig er sagt frá því í erlendum miðlum að maður nokkur, Ronald Jackson, hafi tekið gsm síman af 12 ára dóttur sinni, eftir að hafa lesið SMS skilaboð í símanum hennar, sem honum fannst ósiðleg fyrir svo unga stúlku.

En viti menn: Mamman hringdi á lögguna!

Ronald og barnsmóðirin Steppe, skildu fyrir tveimur árum síðan. Steppe er gift aftur og er núverandi eiginmaður hennar lögreglumaður í Grand Prairie í Texas, þar sem þau búa.

Ronald segist ekki hafa vitað hvað á sig stóð veðrið, þegar síðdegis sama dag og hann tók síma dóttur sinnar, lögreglan barði að dyrum og spurði hvar iPhone síminn umræddi væri.

Ronaldi var misboðið, sagði hann við KHOU 11 svæðismiðilinn og tók ákvörðun um það á staðnum að það væri ekki mál lögreglunnar, hvaða reglur hann setti dóttur sinni. Mamman sagði hins vegar að síminn væri í rauninni hennar sími en ekki eign dótturinnar og því ætti Ronald að skila símanum.

Þetta gerist í janúar árið 2014.

Í apríl 2015 var málið komið fyrir héraðsdóm í Dallas. Þar endaði málið þannig að Ronald var leiddur í handjárnum út úr réttarsalnum og fangelsaður. Hann var reyndar látinn laus gegn tryggingu daginn eftir, en sagði við fjölmiðla:

,,Mér fannst út í hött að lögreglan væri að gera stórmál úr einhverju sem væri í rauninni smámál. Ég ætlaði ekki að trúa því að þeir gætu skipt sér að símamáli hjá mér gagnvart dóttur minni. Mér finnst það í rauninni ekki rétt.\"

Hér má sjá mynd af Ronald og umræddum síma.

\"\"

Lögmaður Ronald tók undir þau orð skjólstæðings síns að málið sé komið út fyrir öll eðlileg mörk. ,,Það mætti halda að við værum stödd í miðjum Jerry Springer þætti.”

Eftir tveggja daga réttarhöld, dæmdi dómarinn í Dallas Ronald hins vegar sekan og málinu var þarmeð lokið. Steppe, móðir stúlkunnar, sagðist þó mjög ósátt við niðurstöðu dómara, enda hefði hún átt síman og getað sannað það með kvittun. Ronald hefði því ekkert haft leyfi til að taka síman af dótturinni og hún liti því svo á að dómsniðurstöðuna væri hægt að túlka þannig að hvers sem er gæti tekið eitthvað sem fólk ætti, af öðru fólki.

Ronald sagði málið hins vegar vera búið að vera svo mikil vitleysa að hann sagðist ekki búast við að vera í neinum samskiptum við mæðgurnar á næstunni.

 Hér má sjá móðurina, Steppe, ganga út úr héraðsdómi með dóttur sinni.

\"\"

Við mælum með á Hringbraut:

Fylgstu með fjölbreyttri dagskrá Hringbrautar: Kíkt í skúrinn, Besti maturinn með Völu Matt, Kvikan með Birni Þorlákssyni, Ólafarnir, Mannamál með Sigmundi Erni, Ég bara spyr, Heilsuráð Lukku, Eywitness, Lífið með Lóu, Afsal, Okkar fólk með Helga Pétursyni, Lög og réttur, Herrahornið og fleira. Og mundu að Hringbraut er ókeypis!

\"\"

Zetan er í eigu Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar. Þú sendir spurningar og sérð svörin á spyr.is en fréttir og annað efni á hringbraut.is. Fylgstu líka með fjölbreyttri innlendri sjónvarpdagskrá Hringbrautar öll kvöld vikunnar: rás 7 hjá Símanum og rás 25 hjá Vodafone. Við erum málefnaleg, fróðleg, lífleg og ókeypis!